Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1928, Síða 78

Eimreiðin - 01.10.1928, Síða 78
382 VIÐARKOL eimreiðin fornar venjur, og einnig af því, að hinir nýju ljáir þóttu þyngri og stirðari í slætti en þeir gömlu og þar að auki ótraustari. Þeir voru í fyrstu mjög harðir, og sökum þess brotnuðu þeir, ef þeir mættu nokkru misjöfnu. Þurfti þá að tinkveikja bót yfir brestinn — lappa ljáinn — fór það oft misjafnlega vel. Eigi var tiltök að klappa þessa Ijái sökum hörku. Voru þeir því lagðir á hverfistein, en miklu var það sjaldnar gert en nú, því þeir þyknuðu miklu seinna. Bitið var ekki mjúkt, en skarpt og hélzt lengi. Brýnt var með svokölluðu sandbrýni, var það ferstrend flöt smáspýta, sem límdur var á sandur af mjög hörðum steintegundum, máttu þau ekki blotna, og því geymdu menn þau í barmi sínum, er þeir slógu. Nokkrum árum síðar lét Torfi Bjarnason enn smíða ljái í Skotlandi með öðru lagi. Voru það einjárnungar úr góðu stáli. Þurfti því ekki að smíða á þá bakka eins og hina, en þjóið var fest á þá með skrúfaðri ró. Voru þeir því kallaðir ýmist skrúfuljáir eða Torfaljáir. Ljáir þessir voru nokkuð stirðir, en bitu í fyrstu ágæta vel, urðu þó ekki langæir, helzt sökum þess að skrúfurnar entust illa, en þær þurfti oft að hreyfa til þess að leggja ljáinn upp og niður, eftir jarðlagi. Þessa ljái mátti klappa, en þeir náðu aldrei almennri útbreiðslu. Skozku ljáirnir höfðu svo mikla kosti fram yfir gömlu íslenzku ljáina — þrátt fyrir smágalla — að heyjaaflinn óx stórum við notkun þeirra, og vafalaust markaði Torfi Bjarna- son með þeim stærsta sporið í íslenzkum landbúnaði á síðasi liðinni öld. Og víst er það, að honum eiga íslenzku skógarnir, eða skógarleifarnar, líf sitt að þakka, því nú fengu þeir frið fyrir kolabrenslunni. Dengsla ljáanna hætti. Búnaðarfélag íslands ætti fyrir löngu að vera búið að láta gera af eiri líkneski þessa merkismanns, og setja það á viðeigandi fagran stað, til maklegrar minningar um þefta starf hans, auk hinna annara margþættu og heillaríku staría hans í þarfir íslenzka landbúnaðarins. Þeir menn, sem verja kröftum sínum til að bæta og prýða landið, græða sár þess og hefta útbreiðslu þeirra, svo sem Torfi Bjarnason og nú Gunnlaugur sandgræðslU' maður Kristmundsson o. fl. — þeir eru áreiðanlega í mjoS náinni samvinnu við skaparann, enda sézt oft, að sérstök blessun hans fylgir verkum þeirra. Þessir menn eru sannir velgerðarmenn þjóðarinnar, og eiga skilið heiður og þökk allra íslendinga, fæddra og ófæddra. Uin 1874 munu hinir nýju Ijáir hafa verið búnir að ná fulln útbreiðslu, en gömlu samsuðuljáirnir lagðir niður, og með þein1 dengslan, og það sem til hennar þurfti. Viðarkolagerðinni var lokið. Oddur Oddsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.