Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1928, Page 82

Eimreiðin - 01.10.1928, Page 82
386 RÍKIÐ OQ BÆKURNAR EIMREIÐIN á Rússlandi skrifaði aðsópsmesti bókmentafræðingur þjóðar- innar, Belinskij, sköruglega grein um það, að rússneskar bók- mentir væru alls ekki til, af þeirri einföldu ástæðu, að Rússar væru alt of mentunarlausir, sljóir og andlausir til þess að geta framleitt verðmæta list. Norður í íslenzka fásinninu setjast menn drembilega á dómstólinn og kveða upp áfellisdóm yfir andlegu lífi þjóðar sinnar, hún ber ekki skyn á bókmentir, er sljó, þröngsýn og þar fram eftir götunum. Um sama leyti er mentamaður suður á Indlandi að útskýra það með aðdáun, hvað skáldskapur og skáldskaparhneigð Islendinga sé merki- legt menningarfyrirbrigði. Háskólakennari vestur í Ameríku skrifar lærða ritgerð til þess að sýna það, að íslendingar séu einhver kj^rnmesta þjóð heimsins, og einhver þýzkur dokfor segir, að Island eigi að verða hið heilaga pílagrímsland allra Germana. Þjóðkunnur Norðmaður sagði nýlega, að þegar hann var aðþrengdur af smáborgaraskap og þröngsýni heima- fyrir þá gladdi það hann mest að kynnast óvenjulegu víðsýni og menningarbrag Islendinga. Svona má lengi telja. íslendingar eru hvattir til þess að taka sér til fyrirmyndar erlenda list og aðra menningu, m. a. í Danmörku. Þegar þangað kemur, er þar fyrir Georg Brandes, sem Kristján Albertson segir að verið hafi »gáfaðasti og mentaðasti bókmentafræðingur heims- ins«, og segir, að hjá Dönum fáist ekki annað en »stum kunst^eller dum kunst«. Svona er það alstaðar. Stórþjóðunum, sem Islendingar eiga að taka sér til fyrirmyndar, er heima fyrir núið um nasir sömu ávirðingunum og sjálfum þeim. Þetta má vel vera þarft og rétt. En eins og hr. Kristján Albertson hefur beitt því við íslenzka menningu er það hvorugt. Hann segir alt og ekkert. Það nær engri átt að ætla að gera þess- háttar lausalopalegar »æstetiskar« handahófshugleiðingar að grundvelli undir víðtækum og fjárfrekum framkvæmdum. Þvi jafnvel þótt til sanns vegar megi færa eitthvað í lýsingum hans á íslenzkum þjóðareinkennum pá hefur hann ekki leitt að því neinar líkur, að þau einkenni hafi nokkur áhrif á íslenzka bókaútgáfu, sem hér er aðalatriðið. Svipuðu máli gegnir um skrif dr. Sigurðar Nordal um »alþýðiu|ienninguna« í þessu sambandi. Það er ekki að neinu leyti nytt eða sérkennilegt fyrir hans afstöðu, að vilja »auka bókakost alþýðu«. En hinsvegar hafa verið nokkuð sérstakar skoðanir hans á því, hversvegna og hvernig eigi að 9era þetta. Hann vill sem sé, að ríkið sjálft auki bókaútgáfuna, en minki skólana. Hann hcfur jafnvel komist svo að orði, að þae sé »uppreisn gegn forlögunum og staðháttunum« að viþa koma upp barnaskólum. Reyndar vill svo til, að þrátt fyrir ýmislegt skynsamlegt og ennþá fleira af áferðarfallegum en
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.