Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1928, Side 85

Eimreiðin - 01.10.1928, Side 85
eimreiðin RÍKIÐ OQ BÆKURNAR 389 og er mismunandi um ýmsar bækur. Það yrði flókið mál og nokkuð teygjanlegt að setja fram marga slika sundurliðaða reikninga. Einfaldast og öruggast væri, að bera ríkisforlagið saman við raunverulegan reksturskostnað einhvers útgáfufyrir- tækis, sem til er, og bókaverð þess. En þar sem Kristján Albertson hefur haldið því fram — án þess að sanna það — að bókaverð útgefendanna sé yfirleitt of hátt, þá er rétt, til þess að fyrirbyggja allan misskilning um það, að hallað sé á ríkisforlagið, að draga ekki dæmi af því, þótt vel mætti svo vera. En þá er vel séð fyrir samanburðinum frá sjónarmiði ríkisforlagsins, ef unt er að bera það saman við útgáfufyrir- tæki, sem eiga að vera rekin hagnaðarlaust, ekki sízt, ef þeim fyrirtækjum stjórna menn, sem Kristján Albertson sjálfur ber traust til. Nú vill svo heppilega til, að endurskoðaðir reikn- ingar slíkra útgáfufyrirtækja eru aðgengilegir og það einmitt reikningar fyrirtækja, sem þeir menn hafa fjallað um, sem Kristján Albertson hefur sjálfur nefnt sem fyrirmyndar fram- kvæmdastjóra ríkisforlags. Eg á við Bókmentafélagið og Þjóð- vinafélagið. Hjá Þjóðvinafélaginu koma einnig til samanburðar útgáfur, sem stjórnað er af öðrum tillögumanni ríkisforlagsins, dr. Sigurði Nordal, og áttu að verða að einskonar framkvæmd í smáum stíl á hinum upphaflegu þýðingatillögum hans, og hlutu all-ríflegan ríkisstyrk. Hagfeldari samanburð (og kær- komnari?) getur Kristján Albertson ekki fengið. Ef byrjað er á því að miða við t. d. lausasöluverðið á And- vara (1928, 7 arkir á 3 kr.), þá ætti hver bók ríkisforlagsins að kosta kr. 6.45, en ekki kr. 2 — eða árgangurinn 116 kr. eða 80 kr. meira en Kristján Albertson ráðgerir. Ef miðað er við lausasöluverð Skírnis, ætti árgangur ríkisforlagsbókanna að kosta (Skírnir hefur verið dálítið misstór) c. 216—234 kr. eða 180—198 kr. meira en Kristján Albertson áætlar. En nú sr ekki rétt, þótt fróðlegt sé, að miða eingöngu við lausasölu- verðið, því Bókmentafélagið setur það viljandi nokkuð hátt, byí það vill heldur fasta félaga en lausaviðskifti. Þessvegna er rétt að bera áskriftarverðið í ríkisforlagsáætlun Kristjáns Al- bertson saman við áskriftarverð Bókmentafélagsins (10 kr.). Útgáfumagn Bókmentafélagsins er allmisjafnt og veHur ekki |inungis á áskriftargjöldum, en einnig á aðkomandi siyrkjum. 1 ár eru gefnar út 33 arkir, en einnig hefur verið gefið út minna. En hér verður miðað við hærri töluna og hagkvæm- ari fyrir Kristján Albertson. Samkvæmt áskriftarverði Bók- fnentafélagsins ættu ríkisforlagsbækurnar að kosta c. kr. 4.65 hver, eða kr. 83 — 84 á ári, eða kr. 48 meira en Kristján Albert- son segir. Og þó er það aðgætandi, að þá er ekkert tillit til Þess tekið, að Bókmentafélagið fær að jafnaði nokkura út-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.