Eimreiðin - 01.07.1930, Blaðsíða 9
EIMREIÐIN
IX
m
m
m
m
m
m
es
m
m
m
m
s
(y6a<
PÍANO og 1
FLYGEL |
hef ég til sýnis og sölu og útvega þau þeim sem ósha,
beint frá verksmiðjunni. I engu þeirra hljóðfæra, sem ég
hef fengið frá þessari verksmiðju, hef ég orðið var við
galla, hvorki að efni né vinnu, og tel þau því tvímælalaust
vönduðustu hljóðfæri, sem ég hef kynst. Verksmiðja þessi
er ein af þeim allra elztu í Þýzkalandi, — stofnuð 1794.
Þeir, sem eignast þessi hljóðfæri, sjá aldrei eftir að hafa
keypt þau.
Ennfremur hef ég til sölu harmonium frá K. A.
Anderssons Eftr. í Stokkhólmi. Þessi hljóðfæri eru svo
þekt hér á landi nú um 40 ára skeið, að ágætri endingu,
einnig sem skóla- og kirkjuhljóðfæri, að óþarfi er að lýsa.
En þess má geta, að auk þess sem þau frá fyrstu hafa
verið talin hin allra endingarbeztu, sem völ er á, hafa þau
nú verið endurbætt að ýmsu Ieyti að mínu fyrirlagi, til
þess að þola enn betur misjafna meðferð og raka loftslagið
hér á landi. Allir söngvinir unna hljómfegurð þessara hljóðfæra.
Ef þér þurfið heimilis-, skóla- eða kirkjuhljóðfæri, þá
er það hyggilegt að spyrjast fyrir um þessi hljóðfæri og verð á
þeim hjá undirrituðum umboðsmanni verksmiðjunnar á Islandi.
Notuð hljóðfæri tekin í skiftum. Qóð notuð og vel viðgerð
hljóðfæri að jafnaði til sölu.
ÍSÓLFUR PÁLSSON,
FRAKKASTÍG 25,
(sími 214).
REYKJAVÍK.
EB
m
Bð
m
Bð
m
Ba
m