Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1930, Blaðsíða 62

Eimreiðin - 01.07.1930, Blaðsíða 62
270 NUNNAN eimrieðin; sem djúp kyrðin ríkti, og hélt svo áfram, unz hún kom á krossgötu inni í eikarskógi. Var hún þá í vafa um hvaða leið skyldi halda og settist við lind eina. Var þar gerð steinþró yfir lindinni og bekkur hjá til þæginda fyrir ferðamenn, sem leið áttu þarna um. Þar sat hún, unz sólin kom upp, og döggin féll og fól hana í úða. En þegar sólin kom upp fyrir trjátoppana og varpaði fyrstu geislum sínum á skógarstíginn, sá hún í geislaflóðinu göfugan riddara koma ríðandi með alvæpni einsamlan eftir stígnum. Nunnan starði á hann augunum fögru og fylgdist eins vel og unt var með hverri hreyfingu þessarar tígulegu myndar, en hafði svo hljótt um sig, að riddarinn hefði ekki komið auga á hana, ef lindarniðurinn hefði ekki náð eyrum hans og leið- beint augum hans. En nú beygði hann út af veginum, steig af baki og gaf hestinum að drekka. Um leið heilsaði hann nunnunni með lotningu. Riddarinn var krossfari og nú á heimleið einsamall eftir langa burtveru, því hann hafði misi alla liðsmenn sína. Enda þótt alt látbragð riddarans bæri vott um djúpa Jotn- ing, hafði hann ekki augun af Beatrix hinni fögru, og endur- galt hún augnaráð hermannsins með því að virða hann gaum- gæfilega fyrir sér, enda hafði þegar birst henni þarna meira en lítið af þeim heimi, sem hún hafði mest þráð í kyrþey. En svo varð hún skyndilega feimin og leit niður fyrir sig- Loks spurði riddarinn, hvert hún ætlaði og hvort hann gæti ekki gert neitt fyrir hana. Hún rankaði við sér, er hún heyrði hina hljómmiklu rödd hans. Hún leit aftur á hann, og heilluð af augnaráði hans játaði hún, að hún hefði flúið úr klaustrinU, til þess að sjá sig um í heiminum, en að nú væri hún strax orðin hrædd og vissi ekki hvað hún ætti til bragðs að taka. Þá hló riddarinn af öllu hjarta og lét sér hvergi bregða, heldur bauðst til að fylgja nunnunni á réttan veg, ef hún vildi aðeins fara eftir þeim ráðum, sem hann gæfi henni. Hann skýrði henni frá því, að kastali sinn væri ekki nema dagleið í burtu, þar gæti hún örugg búið sig undir frekari fram- kvæmdir, og haldið svo, þegar hún hefði hugsað sig betur um, áfram ferð sinni út í heiminn, ef hún þá vildi. Hún svaraði engu, en sýndi heldur engan mótþróa, þótt hún
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.