Eimreiðin - 01.07.1930, Blaðsíða 42
EIMREIÐIN
Jan Umb.
[Grein þessi er þýðing eftir Sigurð Skúlason á inngangsorðum
að ritgerðasafni um Rússland og rússneska menningu eftir danska rithöf-
undinn Martin Andersen Nexö. Þetta ritgerðasafn kom út í bókarformi árið
1923, og nefndi höfundur það „Mod Dagningen“. — Hinn snjalli höf.
hreyfir hér við æfagamalli spurningu um afstöðu kúgarans og þrælsins
hvors til annars, spurningunni um það, hvor reglan sé betri, auga fyrir
auga og tönn fyrir tönn, eða hin, slái einhver þig á hægri kinn þína, þá
snú þú einnig hinni að honum. „Jehóva býr í dag hjá þeim kúguðu",
segir höf. fagnandi. Hinu er aftur á móti ósvarað af honum, hvort Jehóva
nægi hinum þjáða. Vísast mun reynslan enn verða sú, að svo sé ekki.]
Harðla oft hefur mér verið borið á brýn, að það væri kyn-
legt, að ég tæki mér ekki ferð á hendur til Rússlands til að
sannfærast um það með eigin augum, hvernig nýbreytninni
þar vegnaði, sem ég væri að halda uppi vörnum fyrir í
blindni.
Eg hafði nú mínum störfum að gegna einmitt í því sam-
bandi og vissi vel, hvað um var að vera — vit mitt í þeim
efnum risti miklu dýpra en það, sem lesið varð út úr fregn-
um og fyrirbrigðum og þurfti engra utan að komandi stað-
festinga við. Eg hafði séð öreigann varpa okinu af sér nokk-
urum áratugum áður en það skeði í raun og veru, og ég
þekti hann nægilega vel til þess að ég vissi, hvernig hann
mundi snúast við hlutunum. Það var enginn mælikvarði á
þekking mína í þessum efnum, þó að ástandið kynni að neyða
rússneska öreigann til að breyta öðru vísi en til var ætlast.
Öreiginn er háður sömu lögum um víða veröld, og ef hann
er sjálfráður, tekur hann viðfangsefni sín nákvæmlega sömu
tökum í Rússlandi, Astralíu, Vesturevrópu og Ameríku. Það
versta, sem ég gat átt á hættu, var, að nokkurar af skyndi-
röksemdum mínum yrði hraktar.
Hvort voru menn dálítið hikandi í þá daga, ofurlítið
smeykir við veldi Rússlands, við hið óbotnanda hyldýpi í
Austurvegi? Ástandið þar eystra hrópaði til himins; nýja
stjórnin löðraði í blóði og bylti sér í hermdarverkum. Það