Eimreiðin - 01.07.1941, Síða 27
EIMREIÐIN'
GÖMUL SAGA
251
»Eg heiti Þorlákur og er Jónsson, herra. En ég er ekki sekur,
°g var á ferðalagi, á leið norður í land, þegar ég hitti þetta
fólk —
»t*egiðu!“ skipaði sýslumaður. „Ég þekki þig. Þú heitir Jón,
en ekki Þorlákur og ert dæmdur fyrir þjófnað, ekki einu sinni,
heldur fjórum sinnum! En hvað heitir þessi kvenmaður?“
»Nafn mitt kemur þér ekkert við!“ svaraði konan djarflega.
»En ég er ektakvinna Sigurðar svarta og samsek honum.“
»Ærin sök er það,“ mælti sýslumaður og brosti við. „En vita
•skaltu, að ég ber kensl á þig, og ertu kvendi það hið alræmda,
er eitt sinn var nefnd Jóhanna Strandasól! Glæpaferil þinn
hyrjaðir þú á þann hátt, að þú gerðist hjónadjöfull, svo að
húsmóðir þín réði sér bana af þeim sökum. Síðan lifðir þú í
saurlifnaði með manni einum, er nokkuru eftir var sendur á
Eriinarhólm fyrir rán og morðtilraun. Varst þú grunuð um
hlutdeild í glæpum hans, en þér tókst að sleppa úr höndum
réttvísinnar í það skiptið.“
Eann horfði þegjandi á fangana litla stund, svo sagði hann:
»Nú eruð þið komin í minar hendur, og mun ég ekki draga það
lengi ag gera ykkur þau skil, er þið hafið til unnið. Þið munuð
ÉU'a nærri um hvað ykkar bíður? Dómurinn verður kveðinn
UPP i fyrramálið og honum fullnægt þegar í stað!“
Eangarnir þögðu, en Sigurður svarti glotti.
»Látið þið þjófana inn í varðhaldskofann í nótt, piltar“,
s ipaði sýslumaður, og setjið slagbranda fyrir hurðina! Verið
S'° velkomnir allir til snæðings og drykkju, því þið hafið unnið
núkið og þarft verk!“
^ arðhaldskofinn á sýslumannssetrinu var hlaðinn úr grjóti
°S torfi og rammgjör mjög. Gluggar voru engir á kofanum,
uLui skjár í þaki, og voru tvær mannhæðir upp til hans. Aldrei
lafði Það fyrir komið, að fangi slyppi úr varðhaldi þessu,
er*úa talið ókleift. Eikarhurð mikil var fyrir dyrum og tveir
slagbrandar að utan.
Linnnt var i kofanum, þvi niðamyrkur var úti, og móaði að-
eins fyrir skjánum í þakinu. Og ekki var föngunum fengið Ijós.
'gurður svarti settist á torfbálk fvrir gafli og konan hjá hon-
Unh en Jón var á stjái og þreifaði nákvæmlega um alla veggi.
innig varð honum tiðlitið upp í skjáinn.