Eimreiðin - 01.07.1941, Blaðsíða 94
318
STYRJALDARDAGBÓK
EIMREIÐIN
Noyon. Þýzkar skriðdrekasveitir brjótast í gegnum frönsku víglín-
una. Tilkynnt, að brezka farþega- og herflutiiingaskipinu „Carin-
tbia“ liafi verið sökkt af kafbáti.
10. júní. ítalir segja Bandamönnum stríð á hendur. Tilkynnt, a®
allur her Bandamanna sé nú fluttur frá Noregi. Hákon Noregskon-
ungur og norska stjórnin koma til London. Tilkynnt, að flugvéla-
móðurskipið „Glorious“, tundurspillarnir „Acasta“ og „Ardent“>
flutningaskipið „Orama“ og olíugeymsluskipið „Oil Pioneer“ bafi
farizt.
11. júní. Bretar gera loftárásir á Libýu og nýl'endur ítala í Aust-
ur-Afríku. Flugsveitir frá Suður-Afríku á Moyale í Abessiníu. Brezk
árás úr lofti og af sjó á borgina Tobruk.
13. júní. Þjóðverjar sækja fram yfir ána Marne og suður af Rouen.
Taka nokkurn liluta brezkrar lierdeildar til fanga við St. Valery-en-
Caux.
14. júní. Þýzkar herdeildir fara inn í Parísarborg.
15. júní. Þjóðverjar tilkynna, að þeir hafi rofið Maginotvíglínn
Frakka hjá Saarbrúcken.
16. júní. Ráðuneyti Reynauds i Frakklandi segir af sér. Pétain
marskálkur myndar nýja stjórn. Brezka flotastjórnin tilkynnir, :|l'i
fjórum itölskum kafbátum bafi verið sökkt.
17. júní. Pétain marskálkur tilkynnir vopnahlé við Þjóðverja ug
að friðarsamningar séu að hefjast. Akafar orustur við Orleaiis.
Þjóðverjar tilkynna, að þeir hafi tekið kastalavigið Metz. Bretai
gera loftárásir á Rínarhéruðin og Ruhr, einnig á Massawa í Eritreu.
18. júní. Hitler og Mussolini hittast í Múnchen til þess að rseöa
beiðni Frakka um frið. Þjóðverjar segjast hafa brotizt í gegnum
Maginot-linuna við Rinar—Marne-skurðinn. Eitt liundrað þýzkar
sprengjuflugvélar gera árás á austur- og suðurströnd Bretlands.
19. júní. Franska stjórnin sendir fulltrúa sina til að taka við fri®'
arskilmálum Þjóðverja.
22. júní. Franska sendinefndin undirritar í Compiégne vopnalileS'
skilmála við Þjóðverja. Bretar gera loftárásir á Essen, Brenieu>
Kassel og fleiri borgir í Þýzkalandi. Borgin Alexandría í Egyptalaudi
verður fyrir loftárás í fyrsta sinn.
23. júní. Franskar herdeildir veita enn viðnám á sumuin svæ'ðuiu
Maginot-línunnar. De Gaulle tilkynnir stofnun liers frjálsra Frakka-
Brezk loftárás á Hamborg, en 39. loftárás Miðveldanna á eyjuuu
Malta.
24. júní. Vopnahlésskilmálar milli Frakka og ítala undirritaði'
í Rómaborg.