Eimreiðin - 01.07.1941, Side 104
328
ÞEGAR ÉG SAT UM HENRY FORD
eimbbh,iN
á um þær mundir, því að nóttin var furðu ör á fréttir, og blað
vort kom út klukkan 5 að morgni hvers dags.
Klukkan liðlega 9 hringir einka-fréttaritari okkar í Ósló-
Var það Þórólfur frá Öxnavaði, er síðar var alllanga hríð blaða-
fulltrúi í París (P r e s s e a t ta c h é), og nú ritstjóri. Ég tók
simann. Hraðritarinn var enn eigi kominn. Þórólfur hafði fra
ýmsu að segja, og m. a. segir hann að lokum .
„Það er sagt, að mr. Ford sé farinn úr bænum.“
Ég hrökk ósjálfrátt við. Hvers vegna, var mér ekki ljóst 1
svip.
„Farinn! — hvert?“ spyr ég og" reyni að hafa fullt vald á rödd
minni: „Svo—o — jæja,“ segi ég síðan ósköp kæruleysislega-
„Er hann farinn eitthvað? — Veiztu nokkuð hvert?“
„Nei, eitthvað upp í sveit — eða bara eitthvað út úr borginn1
sér til hressingar. Hann hefur verið lasinn------■—
Ég hringi af í eyrað á Þórólfi. Hugsanirnar leiftra eins og
neistaflug gegnum heila minn. Lone starir á mig með öll skiln*
ingarvit opin. Hann sér, að eitthvað óvænt er á seyði. Og Þa®
kemur líka:
„Hæ, Lone! Henry Ford er farinn frá Ósló! Hann hefui'
auðvitað gefizt upp við að berjast við ísinn þar eystra. Það ei'
hann, sem Bergensfjord bíður eftir! Hér er leikur á borði fyi'U
okkur. Hina grunar ekki neitt.“
Lone símar á járnbrautarstöðina. Hraðlestin frá Ósló átti
að koma klukkan 11. „Hvenær kemur hraðlestin?“
„Ómögulegt að segja. Langt á eftir áætlun. Nvfarin frá Geil'
um. Blindhríð á fjalli og fannkingi.“ Þetta var ekki álitlegt •
Næturvinnan gengur sinn gang. Stríðsfregnunum rignir yfir
okkur að venju. Aðalfréttastöðin sendir símskeyti fram tE
klukkan 3 eftir miðnætti. Þá var ekkert útvarp, og skeytn1
voru mörg og löng, sitt úr hverri áttinni.
„Tilkynning þýzku yfirherstjórnarinnar í dag:
„Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum------------.“
Tilkynning brezku yfirlierstjórnarinnar, — hinnar frönsku.
— rússnesku -—. Púh! —--------Símar gjalla úr öllum áttuni. En
nú tekur hraðritarinn við öllum skeytum,
Eg er einkennilega annars hugar í nótt — úti á þekju. En Þ°
með allan hugann við mr. Ford, hraðlestina og Bergensfjord-