Eimreiðin - 01.07.1948, Page 152
312
RITSJÁ
EIMREIÐIN
lietiðnað, og um gamla bæinn nýja,
þ. e. Reykjavík.
Eins og áður eegir, gerir þessi írú
alvarlega tilraun til að setja sig inn
í samhengi hlutanna, til þess að varast
að falla í fordóma útlendingsins. Til
dæmis um það segir hún, að jafnvel
þótt íslenzka matarhæfið sé einhæft
eftir amerískum kokkabókum að
dæma, þá sjái það ekki á börnun-
um, sem séu hraustlegustu börn, er
hún hafi séð og í raun og veru
ódrepandi, eins og hagskýrslur um
barnadauðann beri vott um. En
hvers vegna eru þá amerískar kokka-
bækur þýddar á íslenzku, þar sem
þær eiga svo illa við?
Yfirleitt virðist frúnni ekki gjarnt
að dæma fólk, fé og lönd, þótt hún
finni eitthvað misjafnt í fari þeirra,
og sannarlega hefði maður getað bú-
izt við því að kapítulinn uin veðrið
hefði orðið öðruvísi reiðilestur en
hann reyndist. Ekki bregður því
heldur fyrir, að frúin sjái nein mis-
smíði á íslenzkri pólitík, nema helzt
þar sem kommúnistar eiga ldut að
máli.
Á hinn bóginn finnur frúin margt
til að dást að: blómgun lista og
bókmennta, útvarpið, sem er bless-
unarlega laust við ameríska ruslið
og amerísku auglýsingarnar, og auk
þess er það ekki siður að láta það
rífa þakið af húsunum heima hjá
manni, eins og í Ameríku. Skemmti-
legar fréttir, ef sannar væru.
Villur og missagnir eru mjög fáar,
og mega Islendingar yfirleitt vera
frúnni þakklátir fyrir verk liennar.
Stefán Einarsson.
DIRECTORY OF ICELAND FOR
THE YEAR 1948. (25th ed.). —
Edilor: Hilmar Foss. Rvík, 1947.
(Arbok Islands, H.F.). Þetta er all-
mikil bók og eflaust geysihagleg geit
þeim, sem skrifa þurfa mönnum eða
stofnunum á íslandi eða reka verzlun
þar.
Eru í bókinni ýmsar landfræðilegar,
sögulegar og hagfræðilegar upplýs-
ingar um land og þjóð, tollskrár um
innfluttar og útfluttar vörur, útdrátt-
ur úr íslcnzkum lögum um verzlun,
fiskiveiðar o. fl., o. fl., þar á meðal
hinn frægi og mikilvægi Keflavíkur-
sáttmáli milli Islendinga og Banda-
ríkjamanna.
Að gera svona handbók vel úr
garði er eflaust cnginn barnaleikur,
og eiga aðstandendur og útgefendur
þökk skilda fyrir allt það, sem gott
er og rétt sagt í bókinni.
Því miður er mikið af prentvillum
í bókinni, óhæfilega mikið (sjá t. d.
Keflavíkur-samninginn), þótt það sé
kannske skiljanlegt. Hitt er þó enn
verra, að slæmar og hlálegar mál-
villur hafa slæðst inn í enskuna, og
virðist manni slíkt engin nauðsyn nú
á dögum, þar sem ekki hefði átt að
vera langt að sækja hjálp til yfirlest-
urs til Englendinga þeirra eða Am-
eríkumanna, sem nú eru búsettir á
íslandi.
Höfundur talar um Official Insti-
tutes, á að vera Institutions. Á bls.
149 cr notuð sögnin devide í stað
divide, og mætti ætla prentvillu, ef
eigi kæmi fyrir hvað eftir annað. Ein-
hversstaðar rakst ég líka á derekt í
staðinn fyrir direct. En hlægilegust
er misnotkun sagnarinnar to appease
í friðunarlögunum. Þar segir svo:
Reindeer are appeased by latv, o. s.
frv., á að vera protected by law.
Merkilegt er að þýðandinn í þessu
sambandi skyldi ekki muna eftir því,
að hin fræga tilraun Chamberlains
til að friða (appease) Hitler, var af
allt öðru tæi en tilraunir íslendinga