Eimreiðin - 01.01.1951, Blaðsíða 76
64
MÁTTUK MANNSANDANS
EIMREIÐlN
þjálfunar líkania o|i sálar, og þau skilyrði færa austurlenzkir
meistarar sér í nyt til Iiins ýtrasta. Til eru margar skráðar heimildir
frá sjónarvottum uin undursamlega hluti, sem þeir liafa séð og
sannprófað í Tln'bet og víðar, en ekki gætu átt sér stað við þau
skilyrði, sem við eigum við að búa hér á Vesturlöndum. Má í þvi
efni minna á frásagnir þær, sem Yeats-Brown, majór, liefur birt
í bókum sínum frá Austurlöndum. Þeim mun furðulegra er
hversu vel hinuin fræga fakír, dr. Tahra Bey, tókst með tilraunir
sínar hér á Vesturlöndum, enda vöktu þær geysilega athygli.
Á fundinum í Queens Hall útskýrði ég fyrir hinuin hálærða o{I
virðulega, cn tortryggna áhorfendaskara, sem þarna var samati'
kominn, eðli þeirra fyrirbrigða, sem gerðust, og tel ég rétt að
gefa hér stutta skýrslu um það, sem fram fór, svo að lesendút
mínir geti öðlazt glögga mynd af því, sem minn frægi vinur og
austurlanda-töframaður, dr. Thara Bey, gat áorkað þarna, með
sínum undraverða og þaultamda andans mætti.
Sannanir fyrir mætti mannsandans, gefnar í
Queen’s Hall, London, 14. febrúar 1939.
Fyrsta tilraun.
Fyrsta tilraunin var fólgin í því að framkalla stjarfa-ástand
með liugareinbeitingu. Til þess nota fakírar sérstakar aðferðir og
geta með þeim komið sjálfum sér í þettaástandeftireigingeðþótta.
Dr. Thara Bey varð strax meðvitundarlaus. Líkami lians stirðnaði
upp. Blóðrásin virtist stöðvast og andardrátturinn liætta. Tveir að-
stoðarmenn lögðu síðan stirðnaðan líkamann á tvö Ijáblöð, með
eggina upp, annað undir herðunum, hitt undir öklunum. Þannig k‘
hann í lausu lofti að öðru leyti, upp í loft. Síðan var stór steinn,
sem vóg um tvö lnmdruð pund, settur ofan á kviðarholið. Járn-
smiður koin með stóran hamar, tók að liamra með lionum ofan
á steininn og hætti ekki fyrr en liann var brotinn í mola.
Tilgangurinn með þessari tilraun var að sýna hið óskapleg3
mótstöðuafl, sem mannslíkaminn er gæddur í þessu stjarf»'
ástandi. Undir venjulegum kringumstæðum liefðu ljáblöðin skoris1
imi í líkamann og valdið stórum skurðum og jafnvel dauða.