Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Síða 37

Eimreiðin - 01.10.1952, Síða 37
fclMREIÐIN LJÓSIÐ í GÖNGUNUM 253 hvaðan það stafaði. Ekki kom það utan af götunni, og þegar ég opnaði hurðina framundan, kom ég inn í dimmt herbergi. Þó voru glæður í lítilli kaminu úti i einu horninu. Og við skinið frá þeim sá ég þrjú lítil rúm og eitt stórt meðfram veggjunum. f rúmunum litlu þremur sá á kolla sex harna, sem sváfu vært, tvö í hverju rúmi. Stóra rúmið var mannlaust, en uppbúið. Hér hlaut fólk að hafa brugðið sér frá í svip og mundi koma aftur á hverri stundu. Ég ákvað því að bíða og fékk mér sæti á öðrum þeirra tveggja stóla, sem þarna voru inni, við lítið borð hjá glugganum. Þarna sat ég víst i hálftíma, horfði i glæðurnar og hlustaði á ondardrátt sofandi barnanna. Yfir þessari fátæklegu vistarveru hvíldi einhver dulræð kyrrð og helgi. Mér fannst sem ljósið skæra úr göngunum hefði staðnæmzt við höfðalag litlu rúmanna þriggja. Ég gleymdi stund og stað fyrir einhverjum innri friði, sem hér réð ríkjum. Hér voru jólin 1 sannleika komin, þó að ekkert væri jólatréð, og engar jólagjafirnar — sýnilegar. Ég hrökk upp við, að einhverjir komu inn göngin. Það voru hjónin, foreldrar barnanna sex, sem sváfu svo vært og nutu jólanna í draumi. Ég baðst afsökunar á því, að ég hefði gert mig heimakominn og flutti heimilisföðurnum skilaboðin um vinnuna. % man, að hann sagði, að betri jólagjöf hefði hann ekki getað fengið en að fá að vinna. Hjónin sögðust hafa skroppið í kirkju °g skilið börnin eftir sofandi. „Við höfum skilið þau ein eftir áður sofandi,11 sagði húsmóðirin, „og ég er ekki hrædd um þau. hngill okkar á himnum gætir þeirra,“ bætti hún við með sann- fseringu. h-g sat þarna um stund og ræddi við hjónin. Við töluðum í fágum hljóðum, og það var jólafriður í litla herberginu, þar sem við sátum. Börnin sex sváfu vært sem áður. Og bláa ljosið skæra hafði mótazt í vitund minni — eða ímyndun — eins og þarna stæði ljóssins engill í skínandi skrúða, stæði vörð við hvílu barn- anna þessa helgu nótt og breytti umkomuleysi þeirra i unað, fátækt foreldranna í auðlegð, nöturlegri kjallaraíbúðinni í höll, jolanótt þessarar öruggu fjölskyldu í sigurhátíð. Skömmu síðar kvaddi ég og fór. En ennþá man ég bláa ljósið hjarta og skæra í hreysinu þessa jólanótt fyrir nálega aldar- PriSjungi. Sveinn SigurSsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.