Eimreiðin - 01.10.1952, Page 55
eimreiðin
SAMANBURÐUR
271
Nú var orðið gefið frjálst, og höfðu þá sjö verið skráðir á
rnælendaskrá og urðu miklu fleiri.
Fyrstur tók til máls Matthías Jochumsson, skáld. Deildi hann
í fyrstu nokkuð á Þingeyinga fyrir skort á trúarhrifni, en hældi
þeim mjög að lokum. Þá sendi Þorgils gjallandi erindi, sem lesið
var upp, þar næst talaði Sigurjón Friðjónsson, þá bóndi á Sandi.
Nú verð ég að staldra við. Sigurjón gerði að umtalsefni vísur,
sem skáld héðan úr sýslu orti, er hann var á leið til Vestur-
heims,i) fór með þrjú fyrstu erindin, sem byrja svona:
„Gnauðar mér um grátna kinn
gæfu mótbyr svalur,
kveð ég þig í síðsta sinn
sveit mín, Aðaldalur“....
°g fór ræðumaður með næstu þrjú erindin. Kom síðar niður máli
hans, þar sem hann kveðst harma það, að íþróttin ,,að kveða“ sé
að leggjast niður, bæði rímnakveðskapur og þátíðar erindi. En
áður en ræðumaður lauk máli sínu hafði séra Árni á Skútustöðum,
sam bæði var hugkvæmur og snarráður, náð í tvo sveitunga sína,
hlalga bónda á Grænavatni, sem var góður söngmaður, og Frið-
jón Jónsson, sem nú býr á Bjarnastöðum, þá þrítugur að aldri,
afburðakvæðamaður. Og þegar ræðumaður hætti og lófatak, kváðu
þsssir tveir menn þessar þrjár tilgreindu vísur. Þetta vakti mikinn
fögnuð samkomugesta. Guðmundur á Sandi kallaði hárri röddu:
-Uppi ræðustólinn með þetta.“ Fleiri tóku undir, m. a. séra Matt-
hías. Það varð þó ekki, en knúðir voru þeir til að endurtaka er-
indin.
Ræðuhöldum og söng var svo haldið áfram. Séra Árni talaði
oðru sinni, Guðmundur á Sandi einnig og flutti þá eina af sínum
sníöllustu ræðum, þó að um efni hennar væri deilt á eftir. — Jón
horsteinsson flutti annað kvæði, séra Jónas Jónasson frá Hrafna-
fih flutti ræðu, Helgi Laxdal í Tungu, Karl Finnbogason, Ólafur
á Fjöllum í Kelduhverfi, o. fl.2) Mig hefur oft furðað á síðan,
hversu fólkið hélt sig fast að því að hlusta á hið talaða orð og
þ^Ö svo síðla dags. Aðeins smástrákar fóru að reyna sig á kaðl-
mum, og nokkrir bættust við.
U Sigurbjörn Jóhannsson, faðir Jakobínu skáldkonu.
i Þess var getið í útvarpserindinu í vetur, að Stefán Stefánsson, kenn-
ari á Möðruvöllum, hefði talað. Það er ekki rétt. Hefur vafalaust ekki
Veriö þar. (Sögn tveggja lærisveina hans, þá stuttu síðar).