Eimreiðin - 01.01.1958, Síða 24
XX
EIMREIÐIN
TIL LESENDA EIMREIÐARINNAR.
Nú er 64. árgangur Eimreiðarinnar leggur úr hlaði sér útgáfustjórnin
ásteeðu til að láta fylgja stutta greinargerð. Er þá fyrst að afsaka þann
óeðlilega langa drátt, er orðið hefur á útkomu fyrsta heftis, en til þess
lágu ástceður er ekki varð við ráðið. Vcenta útgefendur þess að kaup-
endur afsaki þennan drátt. Nœsta hefti mun koma út fljótlega og siðan
mun verða unnt að koma réttu lagi á útkomu síðari heftanna.
Tvcer eru þcer breytingar er orðið hafa á yfirstandandi ári; breyting
á ritstjórn og verðhækkun ritsins. Síðastliðin tvö ár hefur verið aðal-
ri.tstjóri Guðmundur G. Hagalin og i ritnefnd Helgi Scemundsson
og Þorsteinn Jónsson. Nú er gerð sú breyting á að ritnefnd er lögð
riiður, en upþ er tekin ritstjórn þriggja manna. Eru það Guðmundur
G. Hagalin, Helgi Sæmundsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Um leið
og Þorsteinn Jónsson hættir störfum vilja útgefendur þakka honum
margvislegan stuðning og þylijast jafnframt mega vænta þess að hans
muni við njóta framvegis. Hvað viðkemur verðhækkun ritsins er það
að segja, að útgefendur gátu ekki dregið lengur það, er brýna nauðsyn
rak til að gert yrði, en það var að hækka áskriftargjald i 85 krónur.
Siðastliðin ár hefur pappirs- og prentkostnaður stóraukizt, og áskriftar-
verð Eimreiðarinnar næstliðið ár var stórum of lágt, og þrátt fyrir þa
hækkun sem nú hefur gerð verið, er þvi sizt stefnt i nokkrar öfgar.
Eimreiðin er 20 arliir af fjölbreyttu lesmáli, prentuð á vandaðan papp'
ir. Er næsta auðvelt fyrir lesendur að gera á þvi samanburð hvar boðiz.t
hafi viðlika bók á s.l. ári fyrir einar 65 krónur.
Utgefendur áttu einslús annars kost en hækka verð ritsins að mun•
Að visu kom til greina að draga úr hækkun með ódýrari pappir, en
frá þvi ráði var horfið. Er þess vænzt að kaupendur yfirleitt hefðu ekhi
talið það æskilega sparnaðarráðstöfun, þar eð það hefði ekki getað kom-
ið í veg fyrir að um nolikra hælikun yrði samt sem áður að ræða.
Útgefendur hafa fullan hug á að halda ritinu áfram, þó að sizt se
um að ræða hagnað af útgáfu þess. Eimreiðin var lengi framan af ema
fagurfræðilega bókmenntatimarit okliar, og þó ýmis hliðstæð timarit
hafi verið stofnuð og komizt til nokkurs þroska, fyrr og siðar, liafa þaU
lagzt niður af ýmsum ástæðum. Enn i dag er Eimreiðin það bókmennta-
timarit sem viðast er lesið í landinu, en þó af allt of fáum. Við væntum
þess að allir hinir vandlátu lesendur og tryggu vinir Eimreiðarinnar
sliilji þá illu nauðsyn er að balti liggur áðurnefndri verðhækkun og
ritið i engu gjalda þess, en þvcrt á móti votti því tryggð sina og hollusta
með því að útvega því nýja kaupendur.
Með kærri kveðju,
ÚTGÁFUSTJÓRN EIMREIÐARINNAR-