Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1958, Page 68

Eimreiðin - 01.01.1958, Page 68
44 EIMREIÐIN að ríma rétt? Þegar ég las Þingeysk ljóð — fyrstu ljóðasyrpu heils héraðs — undraðist ég ekki, hve þar er margt frumlegra snilld- arskálda, en ég dáðist að hinu, hve margar manneskjur í einu og sama héraði — konur sem karlar — áttu í bókinni vel gerð, smekkleg og skynsamleg kvæði. Ég hef ekki tekið þá trú, að Þingeyingar séu að eðli gáfaðri, listrænni og rímsnjallari en til dæmis Snæfellingar, ísfirðingar eða Skaftfellingar, heldur komi þarna til greina þjálfun í að hlýða á, lesa, meta, tileinka sér ljóð snillinganna — læra af þeim, öðlast bókmenntalega menningu. Þá er það hið óbundna málið. Fyrir börnin á að lesa Is- lendingasögur, kafla, sem eru fullir af lífi og spenningi eða eru svo sérkennilegir, að þeir dragi að sér athygli barnsins fyr- ir þær sakir og gefa tilefni til spurninga og skýringa. Víst er mikið um vígaferli í íslendingasögunum, og einhverjir mundu kannski vilja skjóta því hér að, að nú á tímum væri ærið fram- boð á hrollvekjandi skemmtunum, þó að vígalýsingum Is- lendingasagna og morðbrennum væri þar ekki bætt við. En vígaferlin í íslendingasögum, aðdragandi þeirra og afleið- ingar, færa góðum lesanda eða áheyranda meira en hrollinn, hvort sem hann nú verður hálfgildingsvígamóður eða óhugn- aður. Kennaranum gefst kostur á að skýra þannig fjölmargt, sem fram kemur í sögunum, að nemandinn öðlist fræðslu um lífsháttu og lífskjör, og persónurnar stíga svo ljóslifandi fram úr rökkurskuggum hins löngu liðna, að vandalítið er að vekja athygli og áhuga barnanna fyrir mismunandi framkomu sögu- lietjanna og eigindum, drengskap og níðingshætti, höfðing- leik og kotmennsku, hreinskilni og lævísi, — svo að ekki se gleymt hinum mörgu lifandi og lýsandi tilsvörum. Þarna er og tilvalið að koma að kvæðum, sem skáldin hafa ort um per' sónur og atburði sagnanna, og á veggnum hangir íslandskort- ið, og þar er bent á bæina og héruðin, sem eru sögusviðið- Skólastofan verður svipaður skóli og baðstofan var allt fram á fyrsta áratug þessarar aldar, þegar fólkið sat við vinnu sina á kvöldvökunni og einn eða ein kvað rímur, sagði sögu eða las. Annað veifið varð hlé á kveðskapnum, frásögninni eða lestrinum — og svo var rætt um skemmtiefnið, persónur sagn- anna, atburðina, — skiptar skoðanir komu til greina og menn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.