Eimreiðin - 01.01.1958, Side 88
64
EIMREIÐIN
heldur var innt eftir hrossum mínum og fyrirætlunum og
mér sagt frá þeim, sem ég þekkti þar í kring, en hafði ekki
fengið fréttir af. Þar urðu auk heldur hestakaup til sælgætis.
Heimamaður þar vildi gjarnan skipta um lit. Veit ég ekki
enn hvort var, að hann ágirntist útlit Hnausa-Jarps eða hann
fór svona að því að koma mér hjá óþægindum af að komast
á bak á hann, en kaup urðu úr. Fékk ég brúnan þægðargrip,
þýðan og duglegan, í staðinn og varð báðum að góðu, að þvl
er ég reyndi á mínu hlutskipti og frétti af niðurstöðu hans.
Hann vandi af Jarpi eina gallann, sem á honum var, og hafði
þá fengið betri hest en hann lét, en ég fékk auðveldari gnp
og slapp við fleiri slys af stikli og vörnum. Þar þurfti hvor-
ugur annars hest að reyna, og fór ég þaðan um morguninn
ánægður með allt, nema að fara.
4.
Frá Skógum liggur leiðin austur yfir Fnjóská á brú, sen1
ber að fegurð og stíl af flestum steinbogabrúm á íslandi, að
minnsta kosti öllum, sem ég hef séð, og frá brúnni yfir mela
breiða austur til Ljósavatnsskarðs. Það er dalstokkur jafndjúp'
ur báðum næstu sveitum og eins og Fnjóskadalur skógi vaxinn
mjög á aðra hlið en lítt á hina. Er það auðvitað hlíðin, sem
veit mót suðri, sem stórvaxnari hefur gróðurinn. Annars ligg'
ur skarðið skakkt við höfuðáttum, en ekki spillir það norðui'
hlíðinni að gróðursæld eða búsþrifum, þótt hún viti — eins
og hún gerir — einnig móti vestri. Þegar svo kemur suðaust-
ur í skarðið, að vötnum deilir til Bárðardals, fara fljótt að
sjást umskipti á yfirborði jarðar; er þá stöðuvatn fyrir aug-
um: Ljósavatnið. Afrennslið úr austurhluta skarðsins hefm
stíflast þar við hraunjaðar, sem liggur fyrir suðausturenda
þess.
Það er alkunnur lærdómur, að Bárðardalur sé sprunga mi>'
il, og hafi landið sigið austan sprungunnar. Eru þar
lágar heiðar, svo hundruðum metra skiptir lægri en fjalli*
vestan dalsins. Talið er að hraun hafi runnið sunnan sprung'
unnar, fyllt hana upp og flóið út af börmunum. Hraunið
er nú þama til sannindamerkis og hæðarmunurinn, en hva
mundi víðar vera? Hvemig er Eyjafjörður til kominn? Þetta