Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1971, Síða 15

Eimreiðin - 01.01.1971, Síða 15
Um höfundarétt og höfundalög Framsöguræða á Alþingi, er frumvarp til nýrra höfundalaga var lagt fram í vetur Eftir Gylfa Þ. Gíslason, menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason Efni höfundalaga er að veita réttarvernd á tilteknum andlegum verðmætum, þ. e. a. s. bókmenntum og listum. Tilgangur höfunda- laga er að viðurkenna rétt höfunda til umráða yfir verki sínu, en slík umráð geta verið ýmist fjárhagslegs eða persónulegs eðlis. Þau verðmæti, sem menn geta haft tekjur af og njóta almennrar réttar- verndar, geta verið með ýmsum hætti. Lögfræðingar greina þar m. a. á milli svonefndra líkamlegra hluta, þ. e. a. s. fasteignar og lausa- fjár og ólíkamlegra verðmæta, svo sem orku, auðkenna, t. d. vöru- merkja og hugverka, þ. e. a. s. verka á sviði bókmennta, lista, vís- inda og tækni. Það er hlutverk höfundalaga að vernda meginhluta

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.