Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1971, Blaðsíða 35

Eimreiðin - 01.01.1971, Blaðsíða 35
SJÓNVARP Á ÍSLANDI 31 Vekjandi. Um þessi mál má lengi deila, en yfirleitt hafa rannsóknir erlendis sýnt, að varanleg áhrif slíks sjónvarpsefnis eru jafnvel á börn ekki eins mikil og margir halda í fyrstu. Ég vil að lokum minnast á fréttir, en þær eru dýrasti hluti dagskrár- innar og sá, sem að ýmsu leyti er mest áherzla lögð á. Tel ég víst, að áhorfendur sjónvarpsins rnuni Vera sammála urn, að það sé rétt stefna og ekkert efni hafi rneira gildi. Þó er rétt að geta þess, að fréttastofa sjónvarpsins er enn svo fáliðuð og býr við svo þröngar aðstæður, að það er með ólíkindum, hverju hún hefur skilað. IV Það 'er útbreidd skoðun, að sjónvarpið sé mikið kennslutæki og beri að liagnýta þann kost jress til hins ítrasta. Þetta er vissulega rétt, og er vert að hyggja nokkru nánar að því. Greint er á milli þess, sem kallað er skólasjónvarp, og hins, sem kallað er fræðslusjónvarp. Skólasjónvarp eru dagskrár sendar út í b'einu sambandi við kennslu- efni skólanna, og koma fyrst og fremst nemendum þeirra að notum. Þetta efni ætti, ef vel væri, að flytja beint inn í kennslustofur. Fræðslusjónvarp er liins vegar ýmis konar fræðandi efni, s'em ætlað er öllurn, er liafa vilja, ungum og gömlum. Þessi alþýðufræðsla getur verið — og hefur verið — á öllum tímum dagskrárinnar. Hér á landi er eins og annars staðar gerður sá munur á þessu tvennu, að ríkisvaldið kostar skólasjónvarp eins og sjálfa skólana, og ræður efni þess. Hér á landi voru síðasliðið haust hafnar fyrstu tilraunir m'eð skólasjónvarp í eðlisfræði, og hafði alþingi veitt til þess nokkru fé. Fræslusjónvarp er lrins vegar þáttur í liinni almennu dagskrá og hef- ur verið mikið um slíkt efni allt frá byrjun. Þættir um landafræði og náttúrufræði eru gott dæmi. Ætli kennarar þurfi nú að hafa mikið fyrir að útskýra fyrir skólabörnum, hverning Ijón eða fílar líti út, svo oft sem börnin hafa séð þessi dýr í sjónvarpinu? Þættir með tungumála- kennslu 'eru annað dæmi um alþýðufræðslu sjónvarpsins, einnig þætt- ir um bifreiðar, og fjöldamargt annað mætti nefna. Þetta fræðsluefni velur Ríkisútvarpið sjálft og stendur straum af kostnaði við það. í sambandi við skólasjónvarp, sem nú er að hefja göngu sína, er rétt að vara við of draumórakenndum hugmyndum um, hvers það kunni að verða megnugt. Það má nota sjónvarpið til að veita skólurn landsins ómetanlega aðstoð, en sjónvarpsþættir koma aldrei í stað kennara, held- ur eru aðeins nýtt hjálpartæki fyrir þá. Ef kennarar vilja notfæra sér skólasjónvarp getur það komið þeim og nemendum að góðu gagni. Vilji kennarar ekki nota það, er það að m'estu gagnslaust.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.