Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1971, Page 57

Eimreiðin - 01.01.1971, Page 57
ASKAN 53 vizka úr hverri hreyfingu hans og drætti, slíka sem hann liafði eitt sinn áður séð. Og uin hann læstist sjúkur ótti vegna alls þess sem hann hafði látið gera í nafni hins alvitra, til að þjóna eigin girndum. Og hann fann að valdi sínu og virðingu var hætta búin. Og hann sneri höfði sínu undan og mælti óstyrkri röddu til líf- varða sinna: „Þið hafið nú heyrt á orð þessa ábyrgðarlausa manns, og hvernig hann treður fótum þann sannleika sem okkur er heilagur. Sannlega segi ég ykkur að hinn alvitra hef ég augum lit- ið, en þennan mann hef ég aldrei áður séð. Því mun ég eigi sjálfur fella dóm yfir þennan mann, Iieldur fá mál lians ykkur í hend- ur, svo að þið megið fullnægja réttlætinu". Og hann reis úr há- sæti sínu og gekk annað, og hann grét hið innra með sér, því að hann vildi eigi fórna valdi sínu. En lífverðirnir leiddu vitringinn út og settu hann niður í stein- gryfjuna, og þeir fengu fólkinu steina í hendur og skipuðu því að grýta hann, því að hann hafði gengið í berhögg við liinn eina sannleika. Og þeir spurðu hann hvort hann vildi taka aftur orð sín og hreinsa sig, en hann mælti aðeins: „Yður kann ég ekki að áfellast, því að á mínum herðum hvíla allar syndir heimsins". Og lífverðirnir tóku að grýta hann, og er fólkið sá að hann var lítil- magna og blóðugur og að dauða kominn, kastaði það einnig í hann isteinum sínum, því að einnig það vildi öðlast náð fyrir augliti vitringsins mikla á fjall- inu helga. Og þannig endaði vitringurinn á fjallinu líf sitt. Og er æðstiboðarinn frétti að maður sá væri allur, fylltist hann gleði, því að nú var honura enginn æðri. Nú stóðu honuffi allar dyr opnar til dýrðar. Og hann ríkti í mörg ár eftir þetta. Hann drottnaði harðri hendi og lét stjórn sína stýrast af hégórna og dutlungum lijarta síns, en fólkið kúgaði hann og hneppti í eymd og ánauð. Græðgi hans var óhamin og hann sendi heri sína í ófrið til að safna í hirzlur sínar dýrgripum annarra þjóða, og kenna þeint hinn eina sann- leika. Og ef það vildi eigi með- taka sannleikann, lét hann drepa fólkið eða pynta og sumt gerði hann að þrælum, svo að hann mætti byggja sjálfum sér hallir og goðum sínum hof. Og illska og grimmd mannanna skaut rótum í tilveru spillingar og iiaturs. Saklausra blóði var út- hellt vegna lymsku og loginna saka, og fyrir fals og óhróður var- menna var öðrum slátrað. For- mælingar. Og bölsakir voru einu orðin sem andstæðingar fundu hvorir öðrum og einlægni öll og skilningur varð að engu fyrir lævísi og fláræði. Og þegar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.