Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1971, Side 65

Eimreiðin - 01.01.1971, Side 65
SÆLIR ERU ÞEIR . . 61 hvaða starf átti hann nú lielzt að tryggja sér? Þar var vandinn. Hann lét hugann reika, minntist ýmissa hluta, er liann hafði reynt um dagana og líkað 'eða ekki líkað. Átti hann kannski að athuga með skrifstofustarf aftur? Það þekkti hann vel frá fyrri tíð. Hann sá sjálfan sig sitjandi við skrifborð- inni á einhverri skrifstofunni, með hvitt um hálsinn og svip, sem átti að láta alla óviðkomandi lialda, að hann væri skrifstofustjórinn, eða jafnvel forstjórinn sjálfur. Nú brosti hann með sjálfum sér að fáfengilegheitunum. En þægilegt gat þetta verið, því var ekki að neita. Skjótast inn á hlýjan kontórinn utan úr vetrar- kuldanum klukkan 9 á rnorgn- ana, á sama tíma og verkamenn- irnir voru að drekka morgunsop- ann sinn í köldum, skítugum vinnuskúrum, eftir að liafa þá þeg- ar unnið úti í nærri tvo tíma. Hann minntist atviks frá fyrri árum, þegar hann var bókari á stórri skrifstofu, skammt frá mið- bænurn. Hann átti skammt eftir ófarið að dyrunum um morguninn, þegar hann kom til vinnu. Þá veitti hann gömlum rnanni athygli, sem stóð þarna og var byrjaður að pjakka upp götuna með haka. Það var kalt þennan nóvembermorgunn. Gekk á með éljum og ísköld norðan- gjólan snardeyfði 'eyru, nef og fingur, þegar út kom og óliuganleg grá morgunskíman gerði þetta allt margfalt ömurlegra. Eins og ósjálfrátt gekk liann í áttina til gamla mannsins og spurði: „Eitthvað að þarna?“ Gamli maðurinn rétti hægt úr sér, lagði liakann að sér og hvíldi báðar hendur á enda skaftsins. Svo leit hann votum, næstum barnslega einlægum augum fram- an í þennan aðkomumann, sem norpaði þarna í kuldanum, með hendurnar á kafi í frakkavösun- um. „Já, það er stíflað — klóakið. Sennilega liér undir. Þó ekki vist.“ „Nú, já, einmitt. Það er slæmt.“ Annað fannst honum hann ekki hafa að segja. Svo ætlaði hann að halda áfram og koma sér inn. „Það er ómögulegt fyrir aum- ingja fólkið, að koma ekki frá sér skolpinu." Þetta heyrði hann gamla rnann- inn segja um leið og hann byrjaði að fjarlægja sig. Hann stanzaði aftur, ósjálfrátt. Eitthvað hafði snert hann. Hvaða fólk? Jú, það hlaut að vera fjölskyldan í gamla timburhúsinu á móti. Það var ekki búið í neinu öðru húsi í þessum hluta götunnar. Og gamli maðurinn hafði sagt „aumingja fólkið“, þetta útslitna gamalm'enni, sem stóð þarna í kuldanum og barði upp frosna götuna til að leita að klóakstíflu, þó hann vissi varla hvar hana væri að finna. „Aumingja fólkið" liafði hann sagt. Var liann ekki að vinna fyrir laun? Það var eitthvað við þetta allt. Hann skynjaði eitthvað, sem liann hafði ekki þekkt sjálfur, en var þó næmur fyrir. Kannski allt of næmur, það var meinið.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.