Eimreiðin - 01.01.1972, Blaðsíða 20
ÉIMREIÐlN
ST J ÓRNMÁL AFLOKK ARNIR
— Hvaða orð myncLir þú vilja láta falla um stærstu flokkana
í stjórn og stjórnarandstöðu, Framsóknarflokkinn og Sjálf-
stæðisflokkinn?
J.H.: Það, sem mér finnst áhyggjuefni varðandi Sjálfstæðis-
flokkinn, er fyrst og fremst, að hann notar ekki tímann nægi-
lega vel til að undirbúa sig undir næstu stjórn. Þetta er í raun-
inni miklu alvarlegra en það, sem úr lagi fór, meðan hann var í
ríkisstjórn. Flokkar, sem lengi sitja í ríkisstjórn eins og Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur gert, sinna ekki hugmyndafræðinni og
grundvallarstefnunni nægilega. Þeir liafa svo mikið að gera við
að stjórna, að annað er vanrækt. Að vísu gerði Bjarni heitinn
Benediktsson sér mikið far um að skrifa, en þetta gerist samt
við allt aðrar aðstæður lieldur en þegar menn eru utan stjórnar.
Þetta er ein af ástæðum þess, að ég tel mikilvægt að flokkar
sitji ekki sífellt í stjórn, því að utan stjórnar geta þeir hresst
upp á grundvallarstefnuna; farið i nokkurs konar trimm. En
Sjálfstæðisflokkurinn er sem stendur ráðvilltur að meira eða
minna leyti; deilur eru um forystu flolcksins og tíminn er ekki
liagnýttur eins og skyldi, tími, sem raunar getur reynzt mjög
naumur.
Á Framsóknarflokknum sjást bezt umskiptin frá hugmynda-
fræðilegri vímu til viðureignar við veruleikann, sem ég ræddi
um áðan. Ég held, að Framsóknarflokkurinn hafi, allra flokka
mest, tilhneigingu til að vera róttækur í stjórnarandstöðu og
íhaldssamur í ríkisstjórn. Flokkurinn hefur i raun og veru al-
drei gert sér ljósa grein fyrir því, liver hann sé, né hvar hann sé
staddur i tímans rás. Hann hefur aldrei átt pólitíska landafræði
í eigu sinni og er ævinlega áttavilltur. Einmitt vegna þessa skorts
á yfirsýn lagar hann sig mjög að aðstæðum og verður þess vegna
mikill ríkisstjórnarflokkur, þegar hann er í ríkisstjórn, en mikill
stjórnarandstöðuflokkur, þegar hann er í stjórnarandstöðu.
EYRÍKIÐ ÍSLAND
— Telurðu mikla hættu á, að íslendingar verði erlendum
menningarheildum að bráð?
J.H.: Aðalvandi íslendinga er, að við húum á eyju. Við höf-
um að sjálfsögðu alltaf búið á eyju, en ég er ekki viss um, að
menn hafi oft hugleitt, hversu viðtæk áhrif það hefur á allan
hugsunarhátt okkar. Ég lield, að skrifa megi alla Islandssöguna
út frá þessu sjónarmiði. Það sem við höfum verið að gera allan
þann tíma, sem við höfum lifað í þessu landi, er að reyna að
20