Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Blaðsíða 70

Eimreiðin - 01.01.1972, Blaðsíða 70
EIMREIÐIN að vekja athygli á því þjóðfélagsvandamáli, sem hér er um að ræða, en þó skal reynt að benda á nokkrar tillögur til úrbóta. 1. Taka þarf upp einfaldari meðferð smærri mála. Til dæmis mætti liugsa sér þá reglu, að í slíkum málum færi öll gagna- öflun fyrir dómi fram i einu réttarhaldi, málið yrði munnlega flutt í beinu framhaldi af réttarhaldinu, dómi yrði síðan lokið á málið strax, enda þyrfti sá dómur ekki að vera rökstuddur, heldur aðeins dómsorð. Loku yrði fyrir það skotið, að þessum málum yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Það er auðvitað matsatriði, hvaða mál verða talin „smærri mál“, en í þeim málum, sem varða fjárkröfur einkaréttareðlis, mætti t. d. miða við 50—100 þúsund krónur. Sannleikurinn er líka sá, að þrætumál, þar sem deilt er um lægri fjárhæðir en nefndar voru, standa engan veginn undir kostnaðinum, sem málarekstrinum er samfara i héraði, og þola alls ekki áfrýjun, kostnaðarlega séð. Þessar lágmarksfjárhæðir æltu svo að endur- skoðast á eins til tveggja ára fresti. Ekki verður talið, að réttaröryggi eða réttdæmi yrði meiri hætta búin lieldur en nú er, þótt slík regla yrði tekin upp. Allir, sem við dómsmál fást, eru sér þess meðvitandi, að því fer því miður fjarri, að alltaf nái rétt mál fram að ganga, sem og það, að fyrir kemur, að röngu máli sé náð fram. Stendur þetta oft- ast í sambandi við það, hvor málsaðilja er látinn bera halla af sannanaskorti. Eins og nú háttar, taka hin smærri mál allt of mikið af tima fyrir dómstólunum og þvælast þannig fyrir framgangi hinna stærri mála. Með því að stytta þann tíma, sem fer í rekst- ur mála, er varða tiltölulega lítilvæga hagsmuni, sparaðist áreið- anlega mikill timi, sem nýta mætti fyrir þau mál, er meiru varða. 2. Hraða þarf gagnaöflun fyrir dómi. Er þá fyrst og fremst haft í liuga, að yfirheyrslur fari fram sem allra fyrst eftir að mál fer af stað. Nú er það svo, að yfirheyrslur fást yfirleitt ekki í málum fyrr en mörgum mánuðum eftir að mál er höfðað, þegar bezt lætur. Af þessu er mjög tilfinnanlegt óhagræði. Skýrslur manna um löngu liðna atburði eru miður áreiðanleg sönnunar- gögn, sem þó er óhjákvæmilegt að byggja verulega á við dóms- úrlausn. Við nútíma þjóðlífshætti, m. a. hina miklu hreyfingu á fólki, kemur það oft í Ijós, að vitni eru lcomin út um hvippinn og hvappinn, þegar taka á af þeim skýrslur, og jafnvel málsað- iljarnir sjálfir. Auk þess sem skýrslur fyrir dómi væru miklu haldbetri sönnunargögn, ef þeirra væri aflað snemma i máls- meðferðinni, verður að telja sennilegt, að þessi háttur geti leitt til þess, að fleiri málum lyki með sætt heldur en nú er. Það er 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.