Eimreiðin - 01.01.1972, Blaðsíða 51
ÉIMREIÐIN
kölluð, heldur ljóð sem tjá þessar trúarlegu spurningar, sem
fyrr er rætt um. Þetta frelsi eða sjálfræði listarinnar borið sam-
an við þjónustuhlutverk hennar á miðöldum er ekki siður
gagnlegt guðfræðinni og kirkjunni en sú list, sem fer fram inn-
an veggja kirkjunnar. Samt má ekki gleyma því, að listin lifir
áfram sinu lifi innan trúarsamfélagsins, þar sem það er virkt
og starfandi sem slikt. Trúarsamfélagið hefur enn sem fyrr ým-
islegt að tjá og túlka i öllum greinum liinna fögru lista, þótt hér
á landi sé ekki um auðugan garð að gresja i þeim efnum.
Listin túlkar manninn og heim hans að sjálfsögðu á marg-
vislegan hátt, það væri nánast ofdirfskufull tilraun að dirfast
að gera einhvers konar þverskurð á gyðju listarinnar. Engu að
siður her sérhver tími sitt svipmót, sín greinilegu einkenni, sem
vart verða dulin eða misskilin, einkenni, sem mótast af viðbrögð-
um við líðandi stundu, hinu ytra umhverfi og innlöndum hug-
ans. Listina einkennir ekki mikil bjartsýni eða léttvæg róman-
tik, ekki heldur gáskafull gleði yfir lífinu, hvað þá náttúrunni.
Hún tilbiður friðinn með fyrirvara, talar hikandi um sáttar-
gjörð milli rikra og fátækra þjóða, hún virðist ekki ginnkeypt
fyrir þvi sem menn kalla lifsþægindi. Henni virðist skapi næst
að tala um firringu, mengun, stríð, vonbrigði. Stundum vogar
hún sér að skissa upp mynd af framtiðinni, betri mynd og oft
leitar hún á vil dulrænu, hverfur frá raunveruleikanum og leit-
ar sér hvildar í draumi um frið, jafnvægi og samræmi á öllum
hlutum, samræmi i gjörvöllu sköpunarverkinu.
Maðurinn er þess ævinlega fullviss, að betra muni dreymt en
ódreymt, það skaði ekki að eiga sér draum um SHALOM. SHAL-
OM er hebreskt hugtak, sem orðið er að eins konar alþjóðlegu
orði. Það merkir friður, en þó er merking þess miklu viðtæk-
ari en íslenzka orðið friður, það merkir líka samræmi, jafn-
vægi. Þessi von um SHALOM i sköpunarverkinu, í náttúrunni,
mannfélaginu og sálinni virðist vera hluti af þvi að vera mað-
ur, ef til vill sá hluti, sem gefur lionum kraftinn til að lifa og
segja svo einfalt og hnitmiðað og höfundur Hávamála: „Betra
er lifðum en sé ólifðum“.
Von mannsins um SHALOM er uppfylll í Kristi eða með
orðum Páls postula þegar hann prédikaði fyrir spekingunum í
Aþenu: „Sá guð, sem þið tilbiðjið óafvitandi er sá guð sem ég
boða ykkur.“ Boðskapurinn um Krist er boðskapurinn um
SHALOM. 1 upphafi þessarar greinar var sagt, að kjarni krist-
51