Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Síða 52

Eimreiðin - 01.01.1972, Síða 52
ÉIMfcEIÐlN innar trúar væri slcilgreinanlegur á hverjum tíma. Kjarni boÖ- skaparins er að minu viti hvað bezt skilgreindur á þennan hátt: Jesús vill koma SHALOM (jafnvægi og samræmi) á í sköpunar- verkinu (náttúrunni, mannfélaginu og i lifi einstaklinga). Þess vegna hafa menn kallað hoðskapinn friðarboðskap, sem er var- hugavert vegna þess að það er of takmarkandi og er oft ruglað saman við boðskap friðarsinna. Þegar um það er að ræða, þ. e. a. s. frið i samfélaginu, hafa virkir, kristnir friðflytjendur á öllum tímum gripið til nauðsynlegra örþrifaráða (sbr. Berri- ganbræðurna i Bandarikjunum). Þegar spurt er þeirrar sjálf- sögðu spurningar, hvernig Jesús vilji koma SHALOM á i sköp- unarverkinu, er málið komið á annað og óviðráðanlegra stig í stuttri og almennri grein. En um það ber trúarsamfélagið, hinn lifandi söfnuður bezt vitni i orði og verki. Þar sem maðurinn er sér meðvitandi um firringu sína, vanmátt sinn, ráðleysi sitt og draum um SHALOM, þar á boðskapurinn um Krist að eiga hljómgrunn vegna þess að það er takmark hans að gera lífið mannlegt, gera manninn mannlegan, uppfylla draum hans um mennskuna. Ef hann gerir það ekki er hann á villigötum. Kirkjan getur lent á villigötum ef hún gleymir þvi, að hún er hreyfing fyrst og fremst og ef hún hættir að fást af alhug við þörf mannsins fyrir Krist, sem vill leysa hann úr viðjum þeirra afla sem raska samræmi sköpunarverksins og berjast gegn SHALOM. Það sem hér hefur verið sagt, mætti kalla kristilegan húm- anisma eða kristna mannúðarstefnu. Það sem kallað hefur ver- ið mannúðarstefna hefur oftast merkt stefnu þar sem maður- inn er i miðpunkti og hafður að viðmiðun sbr. orð Protagoras- ar: „Maðurinn er mælikvarði allra hluta“. Slíkur húmanismi á ekki upp á pallborðið á okkar timum vegna þess að vestræn menning, a. m. k., einkennist ekki af menningarbjartsýni. — Kirkjan hefur alltaf boðað húmanisma vegna þess að boðskap- ur hennar er til vegna mannsins. Á hinn bóginn hefur hún alltaf litið til mannsins með sérstakri tortryggni og haft til- hneigingu til þess að tala meir um synd hans og firringu en guðlegan uppruna hans, skynsemi hans og aðra vegsemd. Þeirri vegsemd allri og meiri að aulc er Kristur krýndur, en liann er líka inaður og meir en það, liann er imynd mennskunnar, ímynd þess, sem maðurinn vill verða. Þegar trúarbrögð miða að þvi að gera manninn „trúaðan“ hafa þau misst sjónar af mark- miðinu og þess vegna geta trúarbrögð og trúflokkar orðið ómannleg og jafnvel unnið gegn mennskunni. Markmið trúar- 52
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.