Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Page 58

Eimreiðin - 01.01.1972, Page 58
EIMREIÐIN hugsað mér 8 sæti, eitt fyrir livert kjördæmi nema Reykjavík og Reykjanes fengju ekkert en Austfjarða- og Vestfjarðakjör- dæmi 2 hvort. Uppbólarþingsæii í einmenningskjördæmum Um nokkurra ára skeið hefur því öðru hvoru verið hreyft að réttast væri að taka upp einmenningskjördæmi. Rökin eru að- allega tvenns konar. / fyrsta lagi: Samband frambjóðanda og þingmanns við kjósendur yrði náið. Kosið yrði um menn ekki síður en flokka, og það ekki einungis þá fáu menn sem nú skipa baráttusætin á listunum. Myndi það draga úr flokksvaldi, auka ábyrgð hvers óbreytts þingmanns á athöfnum sínum, gera sjálf- stæðum skörungum hægara að komast á þing innan flokka eða utan en litlausum flokksþrælum erfiðara. / öðru lagi: Ef ekki væri því meira um uppbótarsæti, væri litlum flokkum gert erf- itt um vik svo að væntanlega kæmu fram tveir aðalflokkar. Væru þá talsverðar Iíkur á meirihlutastjórn eins flokks sem að ýmsu leyti er talin ákjósanleg. Ég er ekki reiðubúinn að fella afdráttarlausan dóm um ákjós- anleik einmenningskjördæmanna. (Ótvíræðan kost tel ég að losna við öruggu sælin, en því má koma til leiðar með öðrum hætti, til dæmis að hafa menn ótölusetta á flokkslistunum og raða þeim eftir á eftir merkingum kjósenda.) En einmennings- kjördæmi án uppbótarsæta tel ég ekki henta á Islandi og kem- ur þar þrennt til. 1) Vegna þess hve fámenn slik kjördæmi yrðu, er ómögulegt að hafa þau nokkurn veginn jöfn að kjósenda- fjölda, nema farið væri út í að skipta hreppum og þorpum án nokkurs tillits til staðhátta. En misstór kjördæmi auka hættuna á misræmi kjörfylgis og þingstyrks. 2) Vegna þess hve þing- menn eru hér fáir, væri mikil hætta á að flokkum nýttust at- kvæði sín vel eða illa fyrir tilviljun. I stærri löndum þar sem kjördæmi skipta mörgum hundruðum, má fremur treysta því að heppni og óheppni jafnist út. 3) Við búum við rótgróið marg- flokkakerfi. Þótt ef til vill sé æskilegt að það þróist í átt til tveggja flokka kerfis, er ekki þar með sagt að sanngjarnt sé að lögbjóða skipan sem i einni svipan myndi svipta minni flokk- ana nær öllum ])ingslyrk. -— Ég tel því að einmenningskjördæm- um þyrfti að fylgja allmikill fjöldi uppbótarþingsæta. Með einmenningskjördæmum væri enn ríkari ástæða en nú til að binda uppbótarþingsætin við ákveðin kjördæmi. Látum ráðast hvort kjördæmi fær 5 þingmenn eða 7. En munurinn á 1 og 3 er að minnsta kosti of mikill til að láta tilviljun ráða. Ef einmenningskjördæmi yrðu mjög misstór, væri eðlilegt að 58

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.