Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Page 61

Eimreiðin - 01.01.1972, Page 61
BJÖRN BJARNASON EIMREIÐIN Vandi íslenzkra fjölmiðla Um útgáfustarfsemi almennt gildir að sjálfsögðu sú regla, að þeir, sem að henni standa, liljóta að stefna að ákveðnum mark- miðum og hafa skoðanir á því, hvernig þeim verður bezt náð. Markmiðin eru margvísleg t. d. eru sum þröng en önnur víðtæk. Einstaklingur getur tekið sig til og hafið útgáfu málgagns til að afla skoðunum sínum fylgis. Þetla timarit, Eimreiðin, á ein- mitt rætur að rekja til slíkrar viðleitni. Nafnið eitt gefur til kynna áhuga fyrsta ritstjórans á járnbrautum, en hann barðist mjög fyrir því, að slík samgöngutæki yrðu nýtt liér á landi. Allir vita nú, að hann barðist ekki til sigurs í þvi máli fremur en ýmsum öðrum, sem liann har fyrir brjósti. Engu síður hefur tímaritið, sem hann stofnaði skoðunum sínum til fulltingis, haldið velli, og nú er gerð tilraun til að hlása í það nýjum lífs- anda. Reynslan ein getur skorið úr um, hvort niðurstaðan verð- ur sú sama og hjá dr. Valtý Guðmundssyni, að tímaritið haldi velli en skoðanirnar, sem það túlkar, nái ekki fram að ganga. Vonandi leiðir tilraunin ekki til þess, að hæði skoðanirnar og timaritið lognist út af. Þá er verr af stað farið en heima setið. Um allan heim deila menn um stöðu fjöhniðla, starfsliætti þeirra, málflutning og áhrif. Þar sem frjáls blaðamennska hef- ur náð lengst, í Bandaríkjunum, þykjast blaðamenn greina auk- in afskipti ríkisvaldsins af störfum sínum. Þar hefur löngum ríkt spenna í samskiptum fjölmiðla og æðstu stjórnvalda. Hef- ur mátt greina sókn og sigra af beggja hálfu, en nú er sagt, að

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.