Eimreiðin - 01.01.1972, Side 78
EIMREIÐIN
AFL
ÖFUNDARINNAR
Helmut Schoeck er félagsfræði-
prófessor og nokkuð sér á parti í
þeim fjögurra manna hópi, sem
sagt er frá í þessari grein. Hann
var um tíma prófessor í Banda-
ríkjunum og var þá stuðningsmað-
ur Goldwaters, hins hægri sinnaða
repúblikana, sem beið mikinn ósig-
ur fyrir Johnson í forsetakosning-
um.
Schoeck hefur ritað bókina: „Der
Neid“ eða „Öfundin", sem felur í
sér umfangsmikið, hægri sinnað
kenningakerfi. Með bók sinni komst
Schoeck í miðpunkt umræðna um
pólitíska heimspeki, enda fer hann
ekki troðnar slóðir í röksemda-
færslu sinni. Hafa vinstri sinnaðir
félagsfræðingar margir hverjir á
honum ákafa óbeit, án þess að geta
dregið vísindalega hæfni hans í efa.
Schoeck heldur því fram, að öf-
undin sé meðfætt eðli mannsins og
sívirkt afl. Öfundsjúkur er hver
sá, sem ekki þolir, að annar sé,
geti, hafi eða eigi eitthvað, sem
hinn fyrrnefndi fer á mis við. Hann
hefur nautn af því að reyna að
spilla þessu fyrir hinum síðar-
nefnda, án þess að öðlast það sjálf-
ur. Öfundarefnin eru jafnmörg og
mismunurinn er mikill í mannanna
heimi. Öfundin hefur tilhneigingu
til að grípa um sig, heltaka menn
og fljúga á vængjum ímyndunar-
aflsins inn í afkáralegan heim.
Öfundin beinist einkum að þeim,
sem náiægt eru, sem eru dálítið
ríkari, gáfaðri, menntaðri, betur
kvæntir, barnfleiri, virtari o. s. frv.
Öfundin er ofsafengnust, þegar
þes.si mannamunur er tiltölulega
lítill og áþreifanlegur. Fjarlægðin
dregur hins vegar úr öfundinni.
Jón hatar Pétur, sem á heldur
stærri Fólksvagn, en hugsar síður
um Guðmund, sem á Benz.
„Því betur sem einstaklingum og
valdhöfum í þjóðfélaginu tekst að
leiða öfundina hjá sér, þeim mun
meiri verður hagvöxturinn og nýj-
ungarnar örari,“ segir Schoeck.
Öfundin heldur aftur af þróun-
inni að áliti Schoecks. Jafnaðar-
stefnan er honum mikill þyrnir í
augum. Hún vekur að hans dómi
athygli á mismun milli manna,
reynir að eyða honum og ræktar
þannig öfundina. f ríki jafnaðar-
stefnunnar hefur hinn öfundsjúki
alltaf rétt fyrir sér og getur alltaf
vænzt stuðnings kerfisins. Hinn öf-
undaði er hins vegar sífellt í sjálfs-
vörn.
Schoeck segir þó, að öfund sé
þolandi að vissu marki og jafnvel
gagnleg í hófi, því að reglan um
jafnrétti fvrir lögunum feli í sér
aðhald að valdhöfunum. Öfundar-
ræktun sósíalismans fari hins veg-
ar langt út fyrir þessi mörk. Og
ennfremur segir hann, að tilraunir
jafnaðarmanna til að eyða manna-
mun leiði jafnan til nýs manna-
munar og meiri öfundar en fyrir
var.
Schoeck hlífir fáu í skothríð
sinni. Hann fordæmir velferðarrík-
ið í heild sinni, jafnaðarsinnaða fé-
lagsmálastefnu, stighækkandi tekju-
skatt, háan erfðafjárskatt, tillits-
semi við sérréttindastéttir (bændur
og verkamenn), svo og fordæmir
hann, að jafnaðarstefna skólakerf-
isins sói brúttógáfum þjóðfélagsins.
Harkalegast ræðst hann að stuðn-
ingnum við þróunarlöndin og seg-
ir hann vera eins konar fiarvistar-
sönnun vegna félagslegs sambands-
skorts í eigin umheimi.
Samandregin niðurstaða bókar
Schoecks er þessi: „Niður með jöfn-
uð og öfund.“
ANNAÐ
KOM r LJÓS
Giinther Wollny er stjórnmála-
maður, sem mjög hefur látið fé-
lagslega tölfræði til sín taka. Hann