Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Qupperneq 50

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Qupperneq 50
„Á ÉG A Ð VERA MEÐ ÞVÍLÍKUM KERLINGUM Í BEKK?" í umræðu um fullorðna nemendur hefur verið lögð áhersla á að þeir nálgist nám á annan hátt en yngri nemendur og það kalli á breytta kennsluhætti. Malcolm Knowles (1989) bendir á að kennsla byggð á hugmyndafræði fullorðinsfræðslu feli m.a. í sér að eldri nemendur þurfi frekar að vita hvers vegna mikilvægt er að læra ákveðna hluti, þeir taki meiri ábyrgð á eigin námi, búi yfir reynslu sem nýtist þeim í náminu og hafi oft meiri áhuga á því sem þeir eru að læra (sjá einnig Merriam og Brockett, 1997). Aðrir hafa bent á að háskólasamfélagið þurfi að breytast og koma til móts við þarfir eldri kvenna sérstaklega með því að aðlaga námsframboð og gera kennslu-, náms- og námsmatsaðferðirnar þannig úr garði að þær falli betur að náms- þörfum og stíl kvenna (sjá t.d. Wisker, 1996). Feministar í háskólasamfélaginu hafa lagt áherslu á að fræðimennska og kennsla sé í eðli sínu „pólitísk" og hafa þróað hug- myndir um að feminísk uppeldis- og kennslufræði gagnist sérstaklega vel við kennslu eldri kvenna. í slíkri kennslu er m.a. lögð áhersla á samvinnunám og sam- þættingu reynsluheims og gildi hans í náminu ásamt kvenna-/kynjafræðilegri nálgun við sem flest viðfangsefni (Welch, 1994). Töluverð áhersla hefur verið lögð á að kanna hvaða merkingu og gildi fjölskyldan hefur í lífi eldri kvenna í háskólanámi og hvernig þeim gengur að takast á við ólík og oft illsamrýmanleg hlutverk. Ber þar einna hæst rannsókn Rosalind Edwards (1993) í Bretlandi. Hún tók viðtöl við rúmlega 30 eldri konur sem stunduðu háskólanám í félagsvísindum. Edwards notar hugtakið „gráðugar stofnanir", sem komið er frá Söndru Acker (1980), til að lýsa bæði háskólum og fjölskyldunni. Slíkar stofnanir krefjast mikillar hollustu, óskiptrar athygli og jafnvel að bönd við aðrar stofnanir séu rofin. Fjölskyldan er „gráðug" á tíma kvenna því hið hefðbundna fjölskyldumynstur krefst þess að þær séu alltaf til reiðu, tilbúnar að sinna líkamlegum og andlegum þörfum annarra fjölskyldumeðlima. Þrátt fyrir að launavinna kvenna hafi aukist mikið síðastliðna áratugi er margt sem bendir til þess að stór hluti þeirra gangist við þessari menningarlegu arfleifð og skuldbindi sig fjölskyldunni á þennan hátt. Afleið- ingin er sú að þær eru undir miklum þrýstingi og finnst þær þurfi að standa sig á báðum vígstöðum og sjá til þess að hvorug þessarar stofnana sé vanrækt vegna hinn- ar. Ein afleiðing þessa kom fram í rannsókn Edwards því allar konurnar fundu fyrir tímaleysi og erfiðleikum við að sinna skyldum sínum á báðum vígstöðvum. Þær sátu gjarnan uppi með þá tilfinningu að þær sinntu hvorki náminu né fjölskyldunni vel og fundu þar af leiðandi til samviskubits. Jafnvel þó að konurnar hefðu tekið sjálf- stæðar ákvarðanir um að haga lífi sínu á þennan hátt, þurftu þær að forgangsraða verkefnum til að geta tekist á við ólík hlutverk. Þessi forgangsröðun fór fram í ákveðnu félagslegu og stofnanalegu samhengi þar sem tvær „gráðugar" stofnanir bitust um tíma kvennanna. Þetta samhengi gefur reynslu þeirra merkingu m.a. vegna þess hversu ósamrýmanlegar kröfur háskóla og fjölskyldunnar eru og skorts á skiln- ingi og stuðningi samferðafólks þeirra (Edwards, 1993). Erlendar rannsóknir sýna að reynsla eldri kvenna af háskólanámi og samþætting náms og fjölskyldulífs er flókin og margþætt. Þær finna til kvíða í upphafi náms, finnst þær ekki eiga heima í umhverfi sem hefur ekki þróast með námslegar og félagslegar þarfir þeirra í huga og eiga í erfiðleikum með að sinna náminu og fjöl- skyldu eins og þær óska. Þessar niðurstöður vekja spurningar um hver sé reynsla 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.