Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Page 75

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Page 75
JÓHANNA EINARSDÓTTIR, AMALÍA BJÖRNSDÓTTIR OG INGIBJÖRG SÍMONARDÓTTIR endurtékning setninga ogframburður. Málþroskaprófunin með TOLD-2P var gerð af 12 talmeinafræðingum og 16 sérkennurum sem allir höfðu réttindi til að leggja prófið fyrir. HLJÓM-2 prófið var einnig lagt fyrir 267 börn en einungis á leikskólaaldri. Prófun- ina önnuðust fimm talmeinafræðingar og einn sálfræðinemi. Börnin voru prófuð hvert í sínu lagi og voru prófin lögð fyrir í tvennu lagi, með eins til þriggja daga millibili, fyrst TOLD-2P og svo HLJÓM-2. Próftími var í heild um það bil ein klukkustund. Börnin voru prófuð í sínum leikskóla og flest síðar í grunnskóla í umhverfi sem þau þekktu vel3. Börnin voru upphaflega í 12 leikskólum en dreifðust síðar á 34 grunnskóla víðs vegar um landið. Skipting barnanna i hópa eftir færni Akveðið var að skoða þrjá hópa barna, börn sem sýndu slaka færni, meðalfærni og góða færni. Börn sem sýndu færni sem var einu staðalfráviki eða meira undir meðal- tali voru flokkuð með slaka færni. Samkvæmt staðlaðri normaldreifingu eru það tæp 16% barna. Börn sem sýndu meðalfærni eða einu staðalfráviki undir eða yfir meðal- tali lentu í flokknum meðalfærni. Samkvæmt staðlaðri normaldreifingu eru rúm 68% barna í þessum flokki. Þau börn sem sýndu góða færni voru meira en einu staðalfrá- viki fyrir ofan meðaltal. Samkvæmt staðlaðri normaldreifingu eru tæp 16% í þessum flokki. Á málþroskaprófinu TOLD-2P samsvarar þetta því að börn með slaka færni voru með mælitölur undir 85, í meðalflokknum voru börn með mælitölur á milli 85 og 115 og með góða færni voru börn með mælitölur yfir 115. Samkvæmt handbók sem fylgir með TOLD-2P prófinu er meðalárangur á TOLD-2P 100 og staðalfrávikið 15 (Ingi- björg Símonardóttir o.fl., 1995). Á HLJÓM-2 prófinu voru börn með slaka færni með 28 stig eða minna eða einu staðalfráviki eða meira undir meðaltali. Börn með 29 til 55 stig voru flokkuð með meðalfærni og sýndu árangur frá einu staðalfráviki undir eða yfir meðaltali og börn með góða færni voru meira en einu staðalfráviki fyrir ofan meðaltal eða með 56 stig eða hærra. Meðalárangur á HLJÓM-2 í úrtaki var 42,6 stig og staðalfrávikið var 13,4. Á samræmdum prófum í íslensku var einkunnunum breytt í staðalgildi4 en það var gert til að einkunnir væru sambærilegar fyrirbæði árin. Meðaltal staðalgilda er 0 en staðalfrávikið 1. Staðalgildi sýna stöðu þátttakenda miðað við aðra nemendur sem tóku samræmd próf þau ár sem um ræðir. Nemandi sem er með staðalgildi lægra en -1 telst með slaka færni, þeir sem eru með staðalgildi frá -1 og upp í 1 eru með með- alfærni en þeir sem eru með staðalgildi hærra en 1 eru taldir með góða færni. 3 Örfá börn voru prófuð við sjö ára aldur í Talþjálfun Reykjavíkur eða á skólaskrifstofu Garðabæj- ar. Ástæðan var að þau voru flutt út á land en áhugasamir foreldrar komu sérstaklega í bæinn vegna þessa. 4 Sé staðalgildi lægra en 0 þýðir það að árangur er undir meðallagi miðað við árangur annarra í hópnum en ef það er yfir 0 þýðir það að árangur er yfir meðallagi. 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.