Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Page 85

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Page 85
JÓHANNA EINARSDÓTTIR, AMALÍA BJÖRNSDÓTTIR OG INGIBJÖRG SÍMONARDÓTTIR UMRÆÐA Niðurstöður málþroskamælinga við fimm ára aldur gefa sterkar vísbendingar um það hvernig börnum gengur á samræmdu prófi í íslensku í 4. bekk. Mikill munur er á málþroska einstakra barna við upphaf grunnskólagöngu. Tengsl eru á milli almenns málþroska og hljóðkerfisvitundar, einnig á milli málþroskamælinga við fimm og við sjö ára aldur. Börn sem voru með góða færni á málþroskaprófum við fimm og sjö ára aldur fengu langflest meðalgóðar eða góðar einkunnir á samræmdu prófi í íslensku í 4. bekk. Þau börn sem sýndu slaka færni á HLJÓM-2 eða á TOLD- 2P við fimm eða sjö ára aldur fengu langflest slaka eða meðalgóða einkunn á sam- ræmdu prófi í íslensku í 4. bekk. Samt sem áður kemur í ljós að nokkur börn sem voru með slakan eða jafnvel mjög slakan málþroska við fimm ára aldur náðu jafnöldrum við sjö ára aldur og sýndu meðalfærni á samræmdu prófi í 4. bekk. Niðurstöður málþroskamælinga við fimm ára aldur Niðurstöður prófana bæði á hljóðkerfisvitund og málþroska sýna að mikill munur er á getu einstakra barna í þessum þáttum við fimm ára aldur. Eðlilega sýna flest börn meðalfærni bæði í hljóðkerfisvitund og málþroska, rúm 70% barnanna eru skilgreind með eðlilegan eða góðan málþroska og hljóðkerfisvitund. Við upphaf skólagöngu mæta því flest börn vel undir það búin að takast á við væntanlegt nám. Þau hafa góðan málskilning, setningagerð og orðaforða. Þessu er eins farið með hljóðkerfisvit- undina. Flest börn eru með góða hljóðkerfisvitund og hafa því allar forsendur til að takast á við væntanlegt lestrarnám. Með því að leggja HLJÓM-2 og TOLD-2P fyrir leikskólabörn má finna börn sem eru með slakan málþroska og/eða hljóðkerfisvit- und í leikskóla áður en þau hefja eiginlegt grunnskólanám. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að hægt er með markvissri þjálfun að auka málþroska og hljóðkerfisvitund hjá börnum í áhættuhópum á leikskólaaldri (National Research Council, 1998). Saman- tekt Ehri og félaga á 52 rannsóknum sýndi fram á að þessar rannsóknir sýndu mark- tækan mun á lestri og lesskilningi þeirra barna sem höfðu fengið kennslu og þjálfun í hljóðvitund borið saman við þau sem höfðu ekki fengið slíka kennslu (Ehri, Nunes, Willows, Schuster, Yaghoub-Zadeh og Shanahan, 2001). Engin ástæða er til að ætla að það sama gildi ekki hér á landi en vanda þarf til verka. Þjálfunin þarf bæði vera markviss og vel skilgreind. Enn fremur þarf að byggja á þjálfunarefni og æfingum sem rannsóknir hafa sýnt að skili árangri en nánar verður vikið að þessu atriði seinna. Líklega væri best að leikskólakennarar og talmeinafræðingar myndu vinna saman í þverfaglegu teymi að því að auka málþroska og hljóðkerfisvitund þeirra barna sem þurfa á því að halda. Tengsl TOLD-2P og HUÓM-2 I ljós kom mjög sterkt samband á milli TOLD-2P og HLJÓM-2, þ. e. á milli almenns málþroska og hljóðkerfisvitundar. Börn sem eru með góðan málþroska eru yfirleitt með meðalgóða eða góða hljóðkerfisvitund og þau sem eru yfirleitt með slakan mál- þroska eru með slaka eða meðalgóða hljóðkerfisvitund. Það þekkist varla að barn hafi 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.