Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Síða 127

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Síða 127
KRISTIN HELGA GUÐMUNDSDOTTIR Tölva var vissulega notuð sem stuðningur í námi og er í því sambandi vísað til notkunar ritvinnslu, tölvuorðabóka, leiðréttingaforrita o.s.frv. Tölva var einnig notuð til útvíkkunar, en með því er átt við annars konar innihald og vinnuferli þar sem ekki þurfi nauðsynlega að nota tölvur. Sem dæmi má nefna þegar nemendur leita upplýs- inga í gagnagrunnum og í leitarvélum á netinu í tengslum við verkefnavinnu. Um- ræður á netinu eru mikilvægur þáttur í námi fjarnemenda og eru þær ólíkar þeim umræðum sem fara fram í kennslustofum. Með hugtakinu umbreyting er átt við að innihald eða vinnuferli breytast til muna með tölvunotkun. Það sama má segja um tölvustudda samvinnu í fjarnámi þar sem hluti samstarfsins fer fram með hjálp tölvu og á netinu. Nemendum er skipað í þriggja til fjögurra manna hópa og eru ýmsar að- ferðir notaðar við hópskiptingu. Nemendur skipta með sér verkum og vinnur hver sinn hluta heima hjá sér. Þeir nota mismunandi samskiptaforrit, leitarvélar og gagna- grunna á netinu til að afla upplýsinga, til að miðla upplýsingum, til að bera saman bækur sínar og til að vinna saman. Afurð slíkrar samvinnu er oft og tíðum birt eða kynnt á netinu á vefráðstefnum, á vefsíðum eða með glærukynningu. í sumum tilvik- um er afurð tölvustuddrar samvinnu notuð til að búa til efnisflokkaðan gagnagrunn á netinu sem allir hafa aðgang að. NIÐURLAG Rannsókn sem þessi hefur ekki áður verið gerð hérlendis svo að ég viti. Hún á von- andi eftir að verða verðugt innlegg í umræðuna um skipulag fjarnáms og kennslu- fræði fjarnáms á háskólastigi. Rannsóknin veitir innsýn í námsstíl og aðstæður sex fjarnemenda sem stundað hafa nám við KHi. Hún varpar ljósi á tengsl fjarnáms sem námsforms og námsstíls fjarnemenda og hvernig námsumhverfi fjarnemenda við KHÍ er háttað. Ég tel að sú aðferð, sem notuð var í þessari rannsókn, að taka hálfop- in viðtöl við nokkra fjarnemendur og fá þá til að halda dagbók í tvær vikur, sé ein af mörgum leiðum til að fá fram sjónarmið fjarnemenda og viðhorf til rannsóknarefnis- ins. Ég tel jafnframt vel þess virði að gera aðra umfangsmeiri rannsókn við KHÍ á sama sviði og bera saman annars vegar námsstíl fjarnemenda og hins vegar námsstíl nem- enda sem stunda staðnám. Það væri einnig áhugavert að bera saman námsstíl fjar- nemenda við KHÍ og námsstíl fjarnemenda við aðra háskóla. í slíkum rannsóknum væri t.d. hægt að hafa til viðmiðunar námslíkan fræðimannanna Ritu og Ken Dunn. Auk þess væri hægt að bera saman mismunandi fjarnámsform við sömu skóla og hafa kennslulíkan M. Allyson Macdonald til viðmiðunar við greiningu. 125
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.