Ægir - 01.01.1939, Blaðsíða 9
Æ G I R
3
aflanum 1938 liafi verið 8 ára fiskur. I
Keflavík voru rúm 23% af lóðafiskinum
8 ára, en 33% af netjafiskinum. í ver-
tíðaraflanum í Vestmannaeyjum gerði 8
ára fiskurinn tæp 25% af lóðafiskinum,
en um 19% af netjafiskinum. Meðan afla-
ieysið hélzt í Hornafirði gerði 8 ára fisk-
urinn 12% af aflanum, en 26% eftir að
veiði tók að glæðast, sem var ekki fyrr
en eftir miðjan apríl.
í kalda sjónum, eða fyrir Norður- og
Austurlandi, bar langmest á 4 ára fiski.
í Húsavík voru um 27% af aflanum frá
1934, og í Norðfjarðaraflanum gerði þessi
sami árgangur 26%. Af grunnmiðaafl-
anum á Austurlandi gerði 4 ára fiskur-
inn 58% i maí og 46% í ágúst.
Þar sem svo mikið hefir borið á ár-
gangnum 1930 í aflanum 1938, má ætla
að liann gefi mjög gott aflaár 1939.
Argangurinn 1934 virðist vera mjög
sterkur og ætti að fara að bera á honum
i vertíðaraflanum 1940, en þó einkum
1941 og 42.
Frá Vestmannaeyjum gengu 69 hátar
til fiskveiða á vertíðinni. Þar af voru 62
hátar 12 lesta og stærri og' 7 minni hátar,
uieð samtals 596 menn. Er þetta 11 bát-
Um j^fir 12 lestir og 4 undir 12 lestum
færra en fyrra ár. Ársafli 5729 smálestir
(3716).
Vertíðin í Vestmannaeyjum varð miklu
l)etri en áhorfðist, því að ekki þótti ann-
að sýnna fram yfir miðja vertið en að
hún mundi alveg bregðast. í febrúar var
afli mjög tregur og svo að segja allan
marzmánuð var bæði fisk- og gæftaleysi.
Þann 14. marz aflaðist þó ágætlega, og
tvihlóðu þá sumir bátarnir. Upp úr pásk-
unum, en þeir voru um miðjan apríl,
breytti algerlega til og var ágætur afli
út þann mánuð, enda fiskaðist á þeim
hálfa mánuði megnið af vertíðaraflan-
uni. Talsvert af fiski var þá í nánd við
eyjarnar. Flestir hátanna hættu netja-
veiðum í byrjun maí. Fjórir héldu áfram
nokkuð fram i mánuðinn og öfluðu sæmi-
lega.
Tíu hálar stunduðú dragnótaveiðar á
vertíðinni, og var talið að hlutur þeirra
hefði ekki verið minni, en bátanna, sem
veiddu á línu og i net.
Aflahæsti báturinn i Vestmannaeyj-
um veiddi 660 smál. yfir vertíðina.
Lifrarmagnið varð alls 1.690 smál., og
er það mesti lifrarfengur, sem þar hefir
verið bræddur.
Fiskur var vel feilur í byrjun vertíðar.
í aprílmánuði veiddist mjög stór fiskur
en lifrarlítill. Mælingar voru gerðar á
fiski, stærð Iians og athugað lifrarmagn,
eins og nokkur undanfarin ár. Miðað er
við 700 kg. af fiski upp úr sjónum (með
innýflum), en úr því fiskmagni er talið
að fáisl 1 skpd. af harðþurrkuðum fiski,
sem ætlaður er lil Portúgal eða Suður-
Ameríku landanna.
Ur 700 kg. af fiski fengust:
91 fiskur 46 litr. lifnr
2% 100 — 44,2 — —
83 — 45 — —
3% 82 — 51,5 — —
70 — 39,9 _ _
8 % 70 — 35 — —
Um sumarið veiddist óvenjumikið af
þorski, og fékkst mest af lionum í drag-
nót. Talsverður þorskafli var á trillubáta
í september. Fengust stundum 6—7 skpd.
í róðri.
Frá Stokkseyri gengu 9 hátar, með
samtals 105 menn. Voru 5 þeirra yfir 12
smál. og 4 minni. Fyrstu þrjá mánuði
ársins var mjög lítið róið, vegna afla-
tregðu og gæftaleysis. Um mánaðarmót-
in marz og apríl var búið að róa 9 róðra,
en 26 róðra á sama tíma árið áður. Allir
bátar voru hættir um lok. Ársafli 260
smál. (231).