Ægir - 01.01.1939, Page 10
4
æ g i n
Frá Eyrarbalcka gengu 3 bátar, með
samtals 30 menn. Af þeim var 1 bátur
yfir 12 lestir og tveir minni. Mest aflað-
ist frá síðasta marz til 15. apríl, eða þriðj-
ungi meira en á sama tíma árið áður.
Nokkuð aflaðist í maí, en ekkert þann
mánuð 1937. Ársafli 58 smál. (64).
Úr Þorlákshöfn og' Selvogi gengu 11
bátar, með samtals 103 mönnum. Þar af
var 1 þiljaður vélbátur undir 12 smál. og
10 opnir vélbátar. Er það 1 þiljubát og 1
trillubát fleira en fyrra ár. Bezt var
veiðin frá 15.—31. marz, en þó var hún
þriðjungi minni en á sama tíma fyrra
ár. Fyrri liluta maímánaðar var sæmi-
legur afli, en enginn á sama tima 1937.
Ársafli 194 s.mál. (152).
Afli hinna þriggja siðasttöldu veiði-
stöðva kemur aldrei nema að nokkru
leyti í skýrslur. Hann er því miklu meiri,
borið saman við aðrar veiðistöðvar. Staf-
ar þetta af því, að aðeins stærsti og bezti
fiskurinn er saltaður, en liinn hluti afl-
ans er að mestu leyli seldur i hinar fjöl-
mennu og víðlendu sveitir, sem þar eru í
nánd.
Úr Grindavík gengu 31 bátur á vertíð-
inni, með samtals 232 menn. Þar af voru
5 þiljaðir vélbátar og 26 opnir vélbátar.
Vertíðin reyndist ógæftasöm og afli
fremur tregur. í marz-mánuði var mjög
brimasamt, en sæmileg veiði, þegar út
var komizt. Um miðjan apríl var fiskur
mjög lifrarmikill. Ársafli 832 smál. (361).
Úr Höfnum gengu 15 opnir vélbátar,
með 99 menn, og er það 3 bátum fleira
en fyrra ár. Um mánaðarmótin marz og
apríl var óvenju mikill fiskur þar á mið-
unum, en af honum notaðisl ekki sem
skyldi, vegna ótíðar. Veiðarfæratjón var
með mesta móti. Veiðar héldu áfram til
loka, og nokkrir bátar öllu lengur. Árs-
afli 283 smál. (205).
Frá Sandgerði gengu 33 bátar, með
samtals 193 menn. Af þeim voru 20 bát-
ar yfir 12 smál. og 13 opnir vélbátar, og
er það 10 bátum fleira en árið áður. í
marzmánuði var mjög sæmilegur afli.
Sérstaklega veiddist vel vikuna 14.—20.
marz. Aflahæsti báturinn þá viku veiddi
150 skpd. Langmestur afli barst á land
15.—31. marz, eða rúmlega þriðjungi
meira en á sama tíma 1937. Vélbáturinn
„Þráinn“ veiddi loðnu fyrir bátana og
fékk frá 40—100 tn. á dag. I aprílmán-
uði var tregur afli. Mikið veiðarfæratap
var á vertíðinni, af völdum erlendra tog-
ara. Arsafli 1604 smál. (1169). Fiskur
var frekar lifrarlítill, nema i byrjun ver-
tíðar.
Úr 600 kg. af fiski fengust:
3% 44 litr. lifur
i% 40 — —
3% 35 — —
i% 30 — —
394 26 — —
s% 26 — —
Úr Garði og Leiru gengu 13 bátar, með
samtals 70 menn. Fimm bátanna voru
yfir 12 lestir og 8 opnir vélbátar, og er
það 4 bátum fleira en f>Tra ár. Um mán-
aðarmótin febrúar og marz var mikill
afli og fiskur mjög stór. Allir bátarnir
héldu út fram yfir lok, nema 2, sem fóru
á dragnótaveiðar. Um liaustið var mjög
sæmilegur afli, og stunduðu þá 9 opnir
vélbátar veiðar, með 45 mönnum. Árs-
afli 683 smál. (618).
Úr Keflavílc og Njarðvíkum gengu 39
bátar með samtals 206 menn, og er það
3 bátum fleira en árið áður. Af þessum
bátum voru 33 yfir 12 lestir og 6 opnir
vélbátar. Dágóður afli var i marz. Tveir
bátar reru þann mánuð með net, en öfl-
uðu lítið. í aprílmánuði var rýr afli. Þó
brá til dag og dag, t. d. fengu bátar úr
Njarðvíkum 4 þús. á bát af stórum fiski
12. apríl. Er það talinn óvenjumikill afli.