Ægir - 01.01.1939, Side 13
Æ G I R
Cr 600 kg. af fiski fengust:
1 ‘ji 110 fiskar 32 litr. lifur
3% 115 — 30 r— —
1% 105 — 30 — —
Frá Stapa gengu 7 opnir vélbátar. me'ö
27 mönnum, og er það 4 bátum fleira en
fyrra ár. Ársafli 51 smál. (34).
Frá Hjallasandi gengu 17 bátar, með
samtals 94 mönnum. Af þessum bátum
voru 3 þiljaðir vélbátar undir 12 lestum,
12 opnir véibátar og 2 róðrarbátar, og
er það 1 bát færra en 1937. Ársafli 271
smál. (174).
Cr Ólafsvik gengu 9 bátar, með 44
mönnum. Þar af var 1 þiljaður vélbátur
undir 12 lestum, en hitt opnir vélbátar, og
er það 1 bát fleira en síðastl. ár. 1 jan. og
febrúar var dágóður afli og einnig fram-
an af marz, en úr því var rýr veiði, það
sem eftir var vertiðar. Róið var alian
maí-mánuð, en tregur afli. Haustvertíðin
var ágæt. í desember aflaðist Ví af úrs-
aflanum. Ársaflinn 261 smál. (193).
Úr Stykkishólmi og Grundarfirði gengu
8 bátar, með 47 mönnum. Af þeim voru
2 þiljaðir vélbátar undir 12 lestum, 1 op-
inn vélbátur og 5 róðrarbátar. Ársafli
141 smál. (82).
Vestfirðingafjórðungur.
Þar mun mega telja að afli hafi verið
mjög sæmilegur í ár, miðað við undan-
farin ár. Ársaflinn er ekki mjög fjærri
því að vera helmingi meiri en 1937 og er
það talsvert meiri aflaaukning en í öðr-
um fjórðungum landsins. I maí-mánuði
veiddist talsvert af síld og var þvi eng-
inn skorlur á beitu.
Um haustið var víðast bvar góður afli,
en ekki notaðist að honum sem skyldi,
vegna ógæfta.
Úr Flaley og Bjarneyjum gengu 13 bát-
ar, með 51 mann. Af þeim var 1 bátur
yfir 12 lestir og 12 opnir vélbátar, og er
það 6 opnum vélbátum fleira en fvrra ár.
Arsafli 49 smál. (26).
Úr Víkum gengu 17 opnir vélbátar,
með samtals 52 menn; er það 1 bát fleira
en árið áður. Þar var mjög góður afli
framan af vori, en stormar hömluðu mjög
sjósókn. Haustvertíðin var lítilfjörleg
vegna ógæfta. Ársafli 109 smál. (98).
Úr Patreksfirði gengu 2 togarar og 5
opnir vélbátar, með alls 85 menn; er það
4 opnum vélbátum fleira en fyrra ár.
Þar var prýðilegur afli frá þvi um vorið
og fram til hátiða. Er það talið sjaldgæft
að jafn mikill fiskur sé þar á grunnmið-
um svo lengi fram eftir vetri, eins og
raun varð á að þessu sinni. Þvi til sönn-
unar, bvað aflasælt var þar í sumar, má
geta þess, að einn trillubátur, með fjög-
urra manna áhöfn, veiddi á tímabilinu
frá því seint í apríl til 12. júlí um 23
smál. af fullstöðnum fiski. Afli opnu vél-
bátanna á árinu varð alls 110 smál. —
Togararnir stunduðu þorskveiðar á ver-
tiðinni en karfaveiði allt sumarið og
fengu þá jafnan mikið of þorski, sem
þeir söltuðu. Karfaveiðin gekk vfirleitt
mjög treglega. Ársafli 1541 smál. (809).
Úr Tálknafirði gengu 3 opnir vélbátar,
með 12 menn, og er það sama bátatala
og árið áður. Veiði var aðeins stunduð
þar um vorið og fvrri hluta hausts. Árs-
afli 14 smál. (12).
Úr Arnarfirði gengu 16 bátar, með 62
menn. Þar af voru 2 þiljaðir vélbátar
undir 12 leslum og 14 opnir vélbátar, og
er það 1 þiljuðum vélbát og 10 opnum
vélbátum fleira en fvrra ár. Um vorið
var sæmilegur afli fyrir utan Arnarfjarð-
armynnið. Góð veiði var í firðinum um
sumarið og ágæt allt haustið. í Arnar-
firði befir komið meiri afli á land á ár-
inu, miðað við næstu ár á undan, en í
öðrum verstöðvum landsins.
Á Bíldudal voru byggðar á árinu