Ægir - 01.01.1939, Page 14
8
Æ G I R
rækju- og fiskimjölsverksmiðja. Einnig
var byggð þar stór hafskipabryggja. Árs-
afli 206 smál. (53).
Úr Dýrafirði gengu 3 vélbátar minni
en 12 lestir, með 40 mönnum, og er það 3
opnum vélbátum færra en árið áður.
(Línuveiðagufuskipin frá Þingeyri þykir
rétt að telja ganga frá Hafnarfirði, þvi
að þar lögðu þau upp allan vertíðarafla
sinn, nema úr siðustu veiðiferðinni). Árs-
afli 189 smál. (211).
Úr Ömindarfirði gengu 9 bátar, með
samtals 16 meun. Þar af voru 3 þiljaðir
vélbátar undir 12 lestum og 6 opnir vél-
bátar. Árið áður geklc þaðan enginn
trillubátur. Um sumarið var jdirleitt góð-
fiski í firðinum, sérstaklega í júní-mán-
uði. Tveir togarar stunduð karfaveiðar
frá Flateyri. Fiskuðu þeir einnig nokkuð
af þorski, eða um 410 smál., er þeir lögðu
þar á land, og er hann talinn með í árs
aflanum. Ársafli 517 smál. (33).
Úr Súgandafirði gengu 14 bátar, með
samtals 52 menn. Einn þeirra var yfir
12 lestir, 6 minni og 7 opnir vélbátar, og
er það 2 bátum fleira en síðastl. ár. Yetr-
ar- og vorvertíð var rýr, en sumaraflinn
var mjög sæmilegur. Haustvertíðin var i
meðallagi, en smærri bátarnir hættu í
nóvember, vegna ógæfta. Steinbítsafli var
með allra mesta móti siðari hluta vetrar
og um vorið. Ársafli 322 smál. (225).
Úr Bolungarvík gengu 23 þiljaðir vél-
bátar minni en 12 lestir, með alls 123
jnenn, og er það 7 þiljuðum vélbátum
fleira en fyrra ár. Þorskveiðar voru
stundaðar þar kappsamlega, svo að segja
allt árið. Vetrar- og' vorafli var með bezta
móti. Um sumarið fiskaðist einnig mjög
vel og mikið meira en árið áður. Haust-
vertíðin var sæmileg, þótt risjótt væri tíð,
en veiðarfæraslit var mikið. Ársafli 794
smál. (336).
Úr Hnifsdal gengu 11 bátar, með 67
menn. Af þeim var 1 stærri en 12 lestir,
4 minni og 6 opnir vélbátar. Er það ein-
um stórum vélbát fleira, en 2 trillum og
2 árabátum færra en næsta ár á undan.
Vetrar- og vorafli var sæmilegur. Flestir
stærri bátanna bættu þorskveiðum i maí,
en 4 litlir vélbátar héldu áfram veiðum
talsvert lengur. Haustvertiðin var góð,
einkum veiddist vel í september. Arnar-
dalur er ávallt ialinn með Hnifsdal í
þessum skjTslum. Heildarafli báta úr
Arnardal á árinu var 43 smál. Nokkrir
bátar af Snæfjallaströnd lögðu upp afla
sinn í Hnífsdal. Ársafli 300 smál. (215).
Úr tsafjarðarkaupstað gengu 50 skip,
með samtals 279 skipverja. Þar af var 1
togari, 9 vélbátar stærri en 12 lestir, 4
minni, 32 opnir vélbátar og 4 árabátar.
Er það 4 vélbátum (minni en 12 lestir),
28 trillubátum og 4 árabátum fleira eu
fj'rra ár. Togariun „Hávarður Isfirðing-
ur“ fór 5 veiðiferðir á saltfisksvertiðinni
og aflaði alls 320 smál. Stóru vélbátarnir
stunduðu veiðar suður við Snæfellsnes
og öfluðu vel í febr. og marz, en miður
úr því, enda alltaf óstöðug tíð. Þeir bættu
þorskveiðum i byrjun maí. Smábátarnir
öfluðu illa um vorið, en haustvertiðin
var dágóð, og fjölgaði smærri bátunum
þá svo mjög við veiðarnar, að sjaldan
eða aldrei munu fleiri hafa róið úr ísa-
fjarðarkaupstað. Ársafli 1198 smál. (896).
Úr Álftafirði gengu 9 bátar, með 54
menn. Var einn þeirra stærri en 12 lestir,
4 minni og 4 opnir vélbátar, og er það 2
bátum fleira en fyrra ár. Vetrarvertíðin
var sæmileg, en vorvertíðin léleg og mjög
stutt. Ársafli 164 smál. (90).
Úr Ögurvík og Inndjúpi gengu 3 þilj-
aðir vélbátar minni en 12 lestir og 2 opnir
vélbátar, með samtals 18 menn. Er það
sama bátatala og árið áður. Mjög tregur
afli var um vorið i Miðdjúpinu, en glædd-
ist nokkuð, er leið fram að mánaða-