Ægir - 01.01.1939, Qupperneq 15
M G I R
9
mótunum júní—júlí. Ársafli 43 smál.
(44).
f r Griinnavíkui'hreppi gengu 4 opnir
vélbátar, með 16 menn. Ársafli 20 smál.
Ur Sléttuhreppi (Aðalvík, Hesteyri og
Strandir) gengu 24 bátar, með samtals
65 menn. Þar af var 1 þiljaður bátur
nnnni en 12 lestir, 3 opnir vélbátar og 20
árabátar. Er það 1 þiljuðum bát og 2
trillubátum færra en fyrra ár, en 12 ára-
bátum fleira. Ágætur afli var i Hesteyrar-
firði fyrri Iiluta vors. Seint í maí og fyrst í
JÚni var góðfiski í Aðalvík — inn á sjálfri
víkinni, og voru þá 15—18 árabátar, með
2—3 manna áhöfn, á færaveiðum þar.
Auk þess sóttu þangað nokkrir bátar af
Ströndum og frá Hesteyri. Arsafli 117
smál. (125). Mismunurinn á aflanum nú
°g 1937 stafar af því, að rúmur þriðjung-
urinn af fyrra ársafla var frá togurum,
er stunduðu karfaveiðar frá Hesteyri.
Frá Gjögri gengu 2 árabátar og 1 þilj-
aður vélb. minni en 12 lestir, með samtals
8 menn. Megnið af sumaraflanum var
seldur til uevzlu á síldarstöðinni i Djúpu-
vík, og kemur hann því ekki fram hér i
ársaflanum. Ársafli 20 smál. (12).
Ur Steingrímsfirði gengu 24 bátar, með
94 menn. Af þeim voru 5 þiljaðir vélbát-
ur minni en 12 lestir, 15 opnir vélbátar
°g 4 árabátar, og er það 3 þiljuðum bát-
um fleira, en 4 árabátum færra en árið
áður. Framan af árinu var afleitur afli.
Nokkur reytingur var þó í marz og apríl.
Dgæftir töfðu fyrir veiðum síðari liluta
upríl og mest allan maí. Fiskveiðar voru
stundaðar lengur á árinu en undanfarin
ár, og var afli sæmilegur seinni hluta
sumars og allt haustið. Ársafli 612 smál.
(498).
Norðlendingafjórðungur.
Fyrir Norðurlandi var sérlega góð
veðrátta frá áramótum til aprilloka.
Veiðar voru þó mög lítið stundaðar
fyrstu þrjá mánuði ársins. í aprílmán-
uði kom dágott aflahlaup á Skagafjörð,
en ekki stóð það nema nokkra daga.
Snemma vors fékkst loðna og síðar bæði
smásíld og millisíld. Var því nægileg
beita langl fram á sumar. Húsvíkingar
sóttu um tíma beitu til Akureyrar. Virð-
ist það all langsótt, en slíkt hafa þeir þó
gert nokkrum sinnum áður. Með maí
snerist veður til norðan- og norðaustan-
áttar. Var oflast mjög kalt og storma-
samt. Þetta véðurfar hélzt svo að segja
óbreytl fram í byrjun júlí. Róðrar voru
því mjög óstöðugir á þessu tímabili, en
afli sæmilegur. Þorskgengd var miklu
meiri á austurmiðum — austur og fram
af Grímsey og út af Skjálfanda — en út
af Siglufirði og vestar, þar sem jafnan
liefir verið sótt mest áður. Um mánaða-
mólin júní—júlí var að mestu liætt þorsk-
veiðunum úr verstöðvunum við Eyja-
fjörð, nema í Ólafsfirði og Grenivík. En
í sama mund byrjuðu veiðarnar við
Húnaflóa. Úr Skagafjarðarverstöðvun-
um voru þorskveiðar slundaðar fram að
slætti, en úr austurverstöðvunum, Flat-
ey, Húsavík og Þórsböfn var róið mest
allt sumarið.
Yfir sumarið stunduðu flestir stærstu
vélbátarnir síldveiðar, en minnstu þil-
bátarnir voru við dragnótaveiði og grá-
lúðuveiði. Bátar þeir, er voru við grá-
lúðuveiði, öfluðu flestir vel.
Að síldveiðinni lokinni fóru flestir bát-
arnir úr verstöðvunum við Evafjörð aft-
ur á þorskveiðar og öfluðu sæmilega,
eftir því sem vænta má á þeim tíma árs.
Frá Skagaströnd og Kálfshamarsvík
gengu 6 opnir vélbátar og 4 árabátar,
með 35 menn. Er það 1 trillubát fleira en
árið áður. Arsafli 74 smál.
Frá Hvammstanga gengu 3 opnir vél-
bátar, með 9 menn. Ársafli 5 smál.