Ægir - 01.01.1939, Síða 17
Æ G I R
11
skyldi að ýsugengdinni, en hún livarf með
öllu um mánaðamótin febr.—marz.
Loðnugengd var með allra mesta móti
í marz, en þrátt fyrir það fékkst varla
uggi úr sjó. Það kom jafnvel fyrir að bát-
ar komu úr róðri, án þess að liafa veitt
einn fisk. Talið var að í marzmánuði
lxefði komið mestur afli á land i Horna-
firði þann 21., en þá voru 13 hátar á sjó
°g fengu samtals 827 fiska, eða 63.6 að
nieðaltali á bát. Aflahæsli báturinn fékk
þá 236 fiska, en sá aflalægsti einn. Það
þótti einnig athyglisvert, að ekki fékkst
einu sinni tindabikkja, krossfiskur eða
keiia, en af þessum ófénaði liefir jafnan
áður fengizt mikið á línu þar eystra.
(Sbr. 4. tbl. Ægis ’38).
Bátar, sem á Hornafirði voru, fóru
margir heim í aprílbyrjun, vegna afla-
leysis. Höfðu sumir ekki aflað nægilegt
handa sér til matar. Seint i apríl glædd-
ist mjög afli i Hornafirði, og fóru þá
sumir bátanna þangað aftur. Var góður
afli það sem eftir var vertíðar. Var afli
lítið minni jdir vertíðina en árið áður,
þrátt fyrir færri báta og slikt fiskleysi
framan af vertíð, sem áður er lýst.
Grunnmiðaveiði var víða góð i maí-
mánuði, og þá fór einnig að glæðast afli
fyrir Austfjörðum og yfir sumarið var al-
mennt dágóð veiði, miðað við það, sem
verið liefir á sarna tíma undanfarin ár.
Lorskveiðar voru stundaðar meira og af
fleiri bátum yfir sumarið, en síðastl. ár.
Stafaði það meðal annars af þvi, að vél-
bátarnir fóru seinna á síldveiðar en und-
mifarið, eða ekki fyrr en í júlí og færri
hátar stunduðu dragnótaveiðar en sum-
arið áður.
Síldveiði fyrir Norðurlandi stunduðu
31 skip af Austfj. Voru þar af 20 vél-
bátar, er voru með 10 lierpinætur, eða
tveir bátar saman um nót. Sumir bát-
anna fóru á reknet, þegar hætti að veið-
ast i lierpinót, en aðrir fóru heim til
þorskveiða. Útkoma flestra „tvílembing-
anna“ er talin góð á síldveiðunum, þar eð
þeir fóru ekki norður fyrr en síldveiðin
liófst fyrir alvöru.
Saltfisksaflinn i Austfirðingafjórðungi
á árinu varð alls 2.917 smál., og er það
mestur afli, sem þar liefir verið veiddur
í salt, síðan 1934. Útfluttur ísfiskur var
aftur mun minni en undanfarin ár, og
mun það eiga einbvern þátt í því, að salt-
fisksaflinn varð svo mikill, sem f\Tr er
getið.
Frá Skálum gengu 7 opnir vélbátar og
2 ára-bátar, með samtals 25 menn, og er
það sama bátatala og árið áður. Fær-
eyingar stunduðu veiðar þar á 3 trillu-
bátum 1937, en ekkert nú í ár. Ársafli
102 smál. (95).
Úr Gunnólfsvík gengu 3 opnir vélbát-
ar, með alls 8 menn Er það 1 trillubát
færra en fvrra ár. Ársafli 20 smál. (18).
Úr Bakkafirði gengu 6 opnir vélbátar
og 3 árabátar, með 12 menn. Er það 8
trillubátum og 5 árabátum færra en árið
áður. Mest eru það Færeyingar, sem gera
út á Bakkafirði. Aflann flytja þeir út,
nema það, sem þeir láta í skiptum fvrir
útgerðarvörur og aðrar nauðþurftir.
Úr Vopnafirði gengu 8 opnir vélbátar
og 1 árabátur, með alls 20 menn, og er
það 3 trillubátum fleira og 1 árabát
færra en árið áður. Veiðar voru yfirleitt
lítið stundaðar þar á árinu og eftir miðj-
an ágúst var sama og ekkert farið á sjó
til fiskveiða. Ársafli 28 smál. (30).
Úr Borgarfirði gengu 7 opnir vélbátar,
með samtals 21 rnann. Er það sama báta-
tala og árið áður. Veiðar voru ekkert
slundaðar þaðan eftir miðjan ágúst, enda
brá þá til ógæfta. Ársafli 43 smál. (26).
Úr Seyðisfirði gengu 2 vélbátar vfir 12
lestir, 9 minni og 6 opnir vélbátar, með
alis 56 menn. Er það 2 vélbátum stærri en