Ægir - 01.01.1939, Side 18
12
Æ G I R
12 lestir og 2 minni bátum fleira en fyrra
ár. Stærri bátarnir stunduðu flestir
þorskveiðar við Faxaflóa á vetrarvertíð-
inni og síldveiðar yfir sumarmánuðina.
Ársafli 346 smál. (189).
Úr Mjóafirði gengu 8 opnir vélbálar,
með 16 menn, og er það 2 trillubátum
fleira en fyrra ár. Þorskveiðai- voru ekki
stundaðar þar, nema fram i ágústbyrjun.
Snennna á árinu veiddist talsvert af
smásíld í bræðslu, er seld var til Seyðis-
fjarðar. Yfir sumarið veiddist einnig
nokkuð af síld, er var mest seld til beitu.
Ársafli 33 smál. (32).
Úr Norðfirði gekk 1 togari, 9 bátar
stærri en 12 lestir, 3 minni, 22 opnir vél-
bátar og 2 árabátar, með samtals 127
menn. Er þetta 3 vélb. (stærri en 12 lest-
ir) og 2 trillubátum fleira, en 1 vélbát
(minni en 12 1.) færra en fyrra ár. Tog-
arinn „Brimir“ lagði þar á land afla úr
tveimur veiðiferðum, eða alls 107 smál.
Nokkrir bátar frá Norðfirði stunduðu
veiðar við Faxaflóa á vetrarvertíðinni.
Ársafli 702 smál. (377).
Úr Breiðuvík og Karlsskdla gengu 4
opnir vélbátar, með 11 manna áhöfn, og
er það sami bátafjöldi og fyrra ár. Árs-
afli 12 smál. (17).
Úr Eskifirði gengu 4 vélbátar stærri en
12 leslir og 5 minni, með samtals 36
menn. Er það sama bátatala og næsta ár
á undan. Tveir bátar frá Eskifirði stund-
uðu veiðar við Faxaflóa á vertiðinni.
Nokkuð varð síldarvart í Eskifirði fyrst
á árinu og eins um sumarið. Var mest
veitt til beitu, en lítilsháttar sell í verk-
smiðjurnar. Ársafli 265 smál. (144).
Úr Ucijðarfirði gengu 1 vélbátur yfir
12 lestir og 2 opnir vélbátar, með alls 10
menn. Er þetta 1 trillubát færra en síð-
astl. ár. Stærsti báturinn stundaði veiðar
við Faxaflóa á vertíðinni. Ársafli 29 smál.
(17).
Af Vattarnesi gengu 1 vélbátur undir
12 lestir, 17 opnir vélbátar og 1 árabátur,
með alls 65 menn. Er þetta 1 þiljuðum
vélbát og 6 trillubátum fleira en árið
áður. Ársafli 134 smál. (123).
Úr Fáskrúðsfirði gengu 6 bátar yfir 12
lestir og' 3 minni, með samtals 36 menn,
og er það 1 stórum vélbát færra en fyrrá
ár. Opnir vélbátar og árabátar, sem
heima eiga á Búðum, stunda mest veiðar
frá slöðvum út með firðinum, og er afli
þeirra því talinn með þar. Um veturinn
veiddu árabátar lalsvert í þorskanet inn í
firðinum. Stóru bátarnir stunduðu flestir
síldveiðar yfir sumarmánuðina. Nokkrir
bátar stunduðu einnig dragnótaveiðar.
Ársafli 301 smál. (303).
Frá Hafnarnesi og Skálavík gengu 14
opnir vélbátar og 5 árabátar, með sam-
tals 52 menn, og er það 1 árabát færra en
siðastl. ár. Ársafli 184 smál. (144).
Úr Stöðvarfirði gengu 10 opnir vélbát-
ar og' 4 árabátar, með alls 42 menn. Er
það 1 trillubát fleira, en 1 árabát færra
en árið áður. Ársafli 134 smál. (100).
Úr Djúpavogi gengu 1 vélbátur jninni
en 12 lestir og 16 opnir vélbátar, með
samtals 70 menn, og er það 1 þiljuðum
vélbát og 3 trillubátum fleira en næsta
ár á undan. Ársafli 79 smál. (73).
Úr Ilornafirði gengu 11 vélbátar yfir
12 lestir og 6 minni, með samtals 68
menn. Þelta er 4 stórum vélbátum og 6
litlum (minni en 12 lestir) færra en
fvrra ár. í maímánuði aflaðist megnið af
aflanum, eða 359 smál. Ársafli 454 smál.
(491).
Síldveiðin.
Næstum allt árið var síldar vart víðs-
vegar í kringum landið. Smásíld var inni
á Austfjörðum megnið af árinu, en litið
var veitt af henni, nema helzt í Mjóafirði,