Ægir - 01.01.1939, Blaðsíða 27
Æ G I R
21
að þeir, seni ráðnir voru upp á hlut af
afla, hafi ekki fengið meira að meðal-
t^li en kr. 20 um vikuna.
Tafla VI sýnir þátttöku útlendinga i
sildveiðinni við ísland á árinu. Aðeins
fjórar þjóðir tóku nú þátt í veiðunum og
or Það tveim þjóðum færra en síðastl.
ar’ Því að Eistlendingar og Lettlendingar
sóttu nú ekki hingað til veiða, hvað þeir
hafa gert nokkur undanfarin ár. Heild-
arafli útlendinga varð miklu minni en
l}i'i'a ár. Stafar það fyrst og fremst af
l)vh hve þátttaka þeirra í veiðunum
drógst saman, og einnig af því hve síldin
var grunnt að þessu jsinni, eða að mjög
verulegu levti innan við landhelgislínu.
Alls sóttu hingað til síldveiða 176 erlend
skip, og er það 98 sldpum færra en árið
á undan.
1 afla VII sýnir afla ísl. síldveiðiskip-
anua á árinu. Alls hafa þau aflað 1 169 571
mál og tunnur. Togararnir hafa að meðal-
lali aflað 11 510 mál og tn. og er það
6 12(5 minna á skip en síðastl. ár. Afli
logaranna er 24,6% af heildarveiðinni.
Aí]i línuveiðagufuskipanna varð 9114
mál og tn. að meðaltali á skip, en 9 723
]>lra ár. Alls er afli línuveiðagufuskip-
anna 22,3% af lieildaraflanum. Meðalafli
mótorskipanna, er voru eilt um nót, er
s'° a® segja alveg sá sami og fvrra ár.
Alhir afli mótorskipa, sem stunduðu veiði
nieð herpinót, er 53,1 % af heildaraflanum.
Karfa- og ufsaveiðar.
l'leiri togarar stunduðu nú karfaveiðar
nni suinanð en árið áður, og mun liið lága
sildarverð hafa ollið því. Fimm togarar
stunduðu veiðarnar og varð samanlagður
uthaldstími þeirra 441 dagur. Lengstur
ú thalds timi varð 130 dagar. Þrír togaranna
tógðu upp í verksmiðjuna á Sólbakka.
^ oru tveir þeirra frá Hafnarfirði. Byrj-
uðu þeir 23. júní og liættu í byrjun ágúst,
en þá fóru þeir á ísfiskveiðar. Einn log-
arinn var frá ísafirði og byrjaði hann
veiðar 18. júní, en hætti í sama mund og
Hafnarfjarðartogararnir og fór þá á síld-
veiðar. Patreksfjai’ðartogararnir stunduðu
báðir karfaveiðar mest allt sumarið. Síðla
sumars og framan af hausti veiddu þeir
ísfisk fyrir þýzkalandsmarkað, en fóru að
þvl búnu aftur á karfaveiðar og héldu úl
til 20. nóv.
Karfaveiðin var að jafnaði mjög treg
allt sumarið. Yarð heildaraflinn 9003
smál., og er það rúmum 4000 smál. minna
en fyrra ár, en þá stunduðu 13 togarar
karfaveiðar, en flestir þeirra ekki nema
stuttan tíma haust og vor. Hvern úthalds-
dag veiddu karfaveiðatogararnir 19 smál.
að meðaltali, og er það rúmum 3 smál.
minna en fyrra ár og 8 smál. minna á
hvern útlialdsdag en 1936. Það er því sýni-
legt, að karfaaflinn pr. úthaldsdag hefir
minnkað mjög síðan haustið 1936, er fyrsl
var byrjað að stunda þessar veiðar.
Karfaafurðir voru fluttar út á árinu fyrir
543 þús. kr., og er það rúmri 1 milllón
kr. minna en 1936. Um framtið karfaveið-
anna skal engu spáð hér, en svo virðist
sem menn ali ekki almennt jafn bjartar
vonir í sambandi við þá atvinnugrein og
gert var í byrjun.
Þcss má ekki gleyma að gela, þegar
minnst er á þverrandi karfaveiði, að á-
samt karfanum veiðist jafnan talsvert af
þorski. Auk karfans öfluðu togararnir, að
þessu sinni, 1140 smál. ílf þorski (full-
stöðnum), 1953 föt lifur og 184 smál. af
ufsa. Enn fremur hirtu tveir togaranna
737 smál. af hausurii og liryggjum úr
þorskinum og ufsanum, ásamt ýmsum
fisktegundum, er unnið var úr mjöl.
Ufsaveiðar stunduðu 11 togarar og var
samanlagður úthaldstími þeirra 459 dagar.
Skip það, er lengst stundaði veiðarnar, var