Ægir - 01.01.1939, Blaðsíða 31
Æ G I R
25
Alls hefir verið flutt út frá landinu á
árinu 44 883 smál. af saltfiski (ýmist full-
verkuðum, linverkuðum, labradorverkuð-
um, pressuðum eða blautsöltuðum), og
nemur verðmæti bans um 17 milljónir
kr., eða tæp 30% af heildarútflutnings-
verðmæti þjóðarinnar.
Verð á meðalalýsi var mun lægra en
árið áður. I byrjun árs var verðið um kr.
0.80 pr. kg, en féll liröðum skrefum og
var megnið af sumarlýsinu selt á kr. 0.60
pr. kg, og jafnvel nolckur bluti þess á að-
eins kr. 0.55.
Bætiefnaríkl ufsalýsi frá vetrarvertið-
inni sunnanlands var selt á kr. 0.92 pr.
kg, og er það talsvert lægra verð en síð-
astl. ár.
Spurn eftir lýsi var mjög lítil allt árið,
og' mátti jafnvel á stundum telja það lítt
seljanlegt.
Togaraveiðar.
Togararnir fóru ekki fyrr á saltfisks-
veiðar en árið áður og stafaði það fyrst
og fremst af því, að ekki tókst að leysa
kaupgjaldsdeilu þá, er var á milli útgerð-
armanna og fiskimanna á togurunum, fyrr
en 22. marz. Deila þessi var leyst með
gerðardómi, samkvæmt lögum, sem sam-
þykkt voru á Alþingi.
Þann 23. marz létu fyrstu togararnir úr
böfn til saltfisksveiða, en árið áður fóru
flestir 27.marz; nokkrir voru þó farnir
skömmu áður.
Yertíðarafli togaranna var mjög lítill,
miðað við útlialdstíma. Fyrstu þrjár vik-
urnar mátti beita að væri ördeyða. Fyrir
atbeina atvinnumálaráðberra var þvi varð-
skipið „Þór“ sent í fiskileit þann 12.
apríl. Leit skipsins stóð yfir í viku tíma,
en ijar sáralítinn árangur. Frá því um
miðjan apríl og þar til viku af maí var
veiðin mest, en þó langt fyrir neðan með-
allag. Mun aldrei hafa orðið jafn mikið
tap á veiðunum og að þessu sinni.
Flestir togararnir hættu veiðum í maí-
lok, en nokkrir béldu þó áfram lengur,
og bætti sá seinasti 20. júní. Togararnir
fóru alls 157 veiðiferðir, sem er samanlagt
2035 úthaldsdagar, og er það 29 veiðiferð-
um og 382 útbaldsd. fleira en fyrra ár.
Eftirfarandi tafla sýnir úthaldstíma tog-
aranna á saltfisksveiðum, siðastl. 6 ár. Ber
bún það glöggt með sér, hve þessar veiðar
bafa dregizt saman undanfarin 3 ár.
Ár Veiðiferðir Útlialdsdagar
1933 361 3421
1934 340 3362
1935 309 3085
1936 154 1812
1937 .... 128 1653
1938 157 2035
Lengst voru þorskfisksveiðar stundaðar
á logara, á árinu, 122 daga, en 80 daga
árið áður. Þrir togaranna voru á saltfisks-
veiðum við Norður-Noreg nokkurn tíma,
meðan á verkfallinu stóð, og hafa þeir því
lengstan útbaldstíma. En bjá togurunum,
sem heima voru og byrjuðu ekki veiðar
fvrr en eftir 22. marz, var lengstur út-
baldstími á þorskveiðum 90 dagar.
Mesta lifrarmagn á togara yfir vertíð-
ina var 793 föt, en 651 fat árið áður. Með-
alafli, miðað við hvern úthaldsdag, var
miklu minni en nokkru sinni fyrr, eða
1938 4,1 smál. 1935 5,8 smál.
1937 4,2 — 1934 6,1 —
1936 4,4 — 1933 6,6 .—
Þrjátíu og þrír togarar stunduðu salt-
fisksveiðar, en 25 síldveiðar. Fjórir tog-
arar fiskuðu í is meiri hluta sumars. Auk
þess voru 5 togarar á karfaveiðum um
sumarið og alls voru 11 togarar á ufsa-
veiðum, einbvern hluta ársins. Saman-
lagður úthaldstimi allra togaranna á ár-
inu var 9367 dagar og er það 311 dögum
fleira en fyrra ár. Meðalúthaldstími hvers