Ægir - 01.01.1939, Síða 39
Æ G I R
33
ar, 20 búrhveli, 9 steypireyðar og 5 sand-
reyðar. I ár gerir langreyðurin 77% af
heildarveiðinni, en 72% árið áður. Búr-
hvehð gerir að þessu sinni um 14% af
lieildarveiðinni, en 26% fyrra ár. Áttatíu
og sjö af hvölunum voru karldýr, en 60
kvendýr og voru ellefu af þeim með
fóstri. Kvendýrin gera því um 41 % af allri
veiðinni, en gerðu 37% árið áður.
Eftir mánuðinn skiptist veiðin þannig:
Maí 5 hvalir, júní 35, júlí 43, ágúst 51 og
september 13. Árið áður var veiðin mest
í júnímánuði, og þá veiddist enginn hval-
ur í maí.
Engir erlendir livalveiðarar stunduðu
veiðar hér á árinu, en síðastl. ár voru hér
tvö erlend móðurskip með samtals 9 skot-
báta.
Alls voru fluttar út hvalafurðir á ár-
inu fyrir 421 þús. kr., og er það 171 þús.
kr. meira en fyrra ár. Yerðmæti útfluttra
hvalafurða skiptist þannig: Hvalolía 225
þús. kr., hvalkjöt 174 þús. kr. og hval-
mjöl 22 þús. kr. Hvalkjötið var flutt til
Þingeyrar og fryst þar og síðan selt til
Noregs til refafóðurs. Miklu erfiðara var
um sölu á hvalkjöti þangað en fvrra ár.
Um áramótin voru fvrirliggjandi i land-
inu af livalafurðum, 150 smál af frystu
kjöti og 88 smál. af mjöli.
Niðursuða sjávarafurða.
Rækjuverksmiðjan á ísafirði var starf-
rækt eins og undanfarin ár, nema nokkuð
styttri tíma, vegna aflalevsis á rækjumið-
unum. Framan af árinu, sérstaklega þó í
niarzmánuði, voru rækjuveiðar mjög
mikið stundaðar í Arnarfirði. Tóku þált
í veiðunum sjö ísfirzkir bátar, og öfluðu
þeir mjög vel. Tveir menn voru á hverj-
um bát og lágu þeir við með bátana á
Bíldudal, en stór þiljaður vélbátur flutti
aflan til ísafjarðar. Rækjuverksmiðjan á
Isafirði styrkti flutningana með 1000 kr.
á mánuði, og keypti siðan rækjurnar
fyrir 35 aura kg., komið til ísafjarðar.
Mikið af því hráefni, sem verksmiðjan
tók á móti á árinu, mun liún hafa fengið
þann tíma, sem bátarnir stunduðu veið-
ar í Arnarfirði, enda sauð hún þá niður
60—70 kassa af rækjum á dag. Um sum-
arið var mjög litil veiði og sama og engin
á miðunum í nánd við ísafjörð. Fyrst
og fremst af þessum ástæðum mun hafa
orðið talsverður taprekstur bjá verk-
smiðjunni á árinu. Til fiskimanna og
verkafólks í landi greiddi verksmiðjan
um 100 þús. kr., og mun það vera um
25 þús. kr. minna en síðastl. ár.
Ný rækjuverksmiðja var reist á Bíldu-
dal, en ekki var liún fullbúin til starfa
f\Tr en síðast í september. I þessari nýju
verksmiðju er rækjan hagnýtt að fullu,
því að úr skel rækjunnar er unnið mjöl
til hænsnafóðurs. Aðeins tveir bátar
veiddu fyrir verksmiðjuna um liaustið,
en öfluðu frekar lítið. Alls voru fluttir
út 100 kassar af rækjum á árinu frá
Bíldudalsverksmiðj unni.
Alls voru fluttar út rækjur á árinu fyrir
156 þús. kr., og er það álíka mikið og
síðastl. ár. Útflutningsmagnið hefir þó
minnkað um 12 smál., og má af því ráða,
að útflutningsverð á rækjum hefir hækk-
að allverulega á árinu. Eftirspurn eftir
rækjuni er allmikil, og talið er liklegt
að þær muni hækka í verði.
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda lét
á árinu reisa stóra og myndarlega fisk-
niðursuðuverksmiðju, búna öllnm ný-
tizku tækjum. Verksmiðjan tók til starfa
í september. Eru framleiddar þar um
20 tegundir af niðursoðnu og niðurlögðu
fiskmeti. Framleiðsla verksmiðjunnar
Iiefir líkað mjög vel innanlands og hefir
salan orðið meiri en búist var við í upp-
hafi. Smásendingar til reynslu eru farnar