Ægir - 01.01.1939, Qupperneq 43
Æ G I R
37
konar veiðar stunduðu árið áður, en 57
skipum færra en 1936.
Þrjátíu og þrír togarar stunduðu salt-
fisksveiðar, þegar þeir voru flestir, og er
það 1 togara fleira en fyrra ár. Ellefu
línuveiðagufuskip stunduðu saltfisks-
veiðar á árinu og er það 6 fleira en fyrra
ár. Vélbátum yfir 12 lestir fækkaði um
5, en vélbátum undir 12 lestum fjölgaði
um 11. Opnum vélbátum, er þorskveiðar
stunduðu, fækkaði um 61, en árabáta-
fjöldinn var svipaður og' siðastl. ár.
Slysfarir og’ skiptapar.
Sjóslys liafa orðið með meira móti á
árinu 1938. Samtals drukknuðu hér við
land á árinu 45 menn, og voru þeir allir
innlendir. Þar af voru 6, sem drukknuðu
í ám og vötnum, 5 féllu út af hryggjum
og' drukknuðu, 6 féllu út af skipum eða
skolaði út og' 30 drukknuðu af skipum,
sem fórust.
Með allri áhöfn fórust á árinu 1 togari,
1 vélbátur yfir 12 lestir og 2 opnir vél-
hátar. Auk þessa sukku 2 vélbátar minni
en 12 lestir.
Þrír vélbátar strönduðu á árinu, en var
öllum náð á flot aftur og gert við þá.
Einn enskur togari strandaði, en var
náð út aftur og framkvæmd á honum
hráðabirgðaviðgerð i Rvilc, og komst
hann lieim heilu og höldnu.
Við hafnarg'erðir og'
lending’abætur
var unnið á árinu sem hér segir:
Ólafsvík. Þar var lokið við bryggjuna
og suðurgarðinn, með þvi að byggður
var liaus 17,5 m. fram, og er hann 11.75
ni. breiður fremst. Skjólgarðurinn var
sleyptur alveg fram fyrir hausendann og
auk þess þeir liðlega 11 m., se.m eftir
voru af garðinum frá fyrra ári. Auk
þessa var framkvæmd talsverð klappar-
hreinsun meðfram bryggjunni og hausn-
um. Kostnaður við þessi verk varð um
17 þús. kr.
Flateyri. Steypt var ofan á sjóvarnar-
garðinn á 256 m. svæði og auk þess fyllt
að garðinum á 317 m. bili. Kostnaður
4207 kr.
Súgandafjörður. Þar var hyrj að á
hafnargerð. Var stej'ptur 45 m. langur
veggur, er myndar ytri lilið hafnargarðs-
ins. Nær hann frá vegbrún, sem er ofan
fjörunnar, og fram að sjómáli um stór-
straumsfjöru. Innan við steinvegginn var
gerð 7 m. breið grjótfylling, en á ytri
brún garðsins var steyptur 40 m. langur
skjólveggur. Allur kostnaðurinn varð um
18 þús. kr.
Slcagaströnd. Hafnargarðurinn þar var
lengdur um 40 m. Steinsteypuker, er
steypt \rar 1937, var sett við enda garðs-
ins og myndar það fremsta hluta hans.
Dýpi við framenda garðsins er um 15 fet,
miðað við stórstraumsfjöru. Kostnaður
við þetta verk varð ca. 80 þús. kr.
Sauðárkrókur. Þar var hafnargarður-
urinn lengdur um 140 m., og er hann nú
kominn í fulla lengd, eða um 280 m.
Verki þessu er nú að mestu lokið og
garðurinn tekinn til notkunar. Á þessu
ári var alls unnið fyrir um 230 þús. kr.
Siglufjörður. Unnið var þar að hafn-
argerð i framhaldi þess, sem gert hefir
verið síðastl. tvö ár. Til verksala hefir
nú alls verið greitt um 389 þús. kr., en
samningsupphæðin er 640 þús. kr.
Dalvík. Þar voru gerðar ýmsar undir-
búningsrannsóknir með tilliti til vænt-
anlegrar liafnargex'ðar. Kostnaður við
þessar rannsóknir varð 6700 kr.
Þórshöfn. Þar var byrjað á bryggju, er
nær nú orðið 18 m. fraixx fyrir stór-
straumsfjöruborð. Við bryggjuendann er