Ægir - 01.01.1939, Page 46
40
Æ G I R
Tafla XXIII. Skipastóll landsins í árslok 1938 (frá Hagstofu íslands).
Gufuskip Mótorskip Samtals
Tala Brúttó rúml. Tala Brúttó rúml. Tala Brúttó rúmt.
liotnvörpuski]) 36 12 428 )) )) 36 12 428
Onnur fiskiskip 29 3 350 563 9 997 592 13 347
Farþegaskip 6 8 121 2 340 8 8 461
Vöruflutningaskip 6 5 514 3 326 9 5 840
Varðskip 1 226 2 569 3 795
Dráttarskip 1 ín » )) i 111
Björgunarskip )) » i 64 1 64
Samtals 1938 79 29 750 571 11 296 650 41 046
Samtals 1937 81 30 838 581 10 965 662 41 803
Samtals 1936 81 30 776 617 10 993 698 41 769
botnuörpuskipa. Á árunum 1938—1940,
að báðum meðtöldum, er útgerðarfyrir-
tækjum ísl. botnvörpuskipa beimilt að
draga frá skattskyldum tekjum sínum
tap, sem orðið befir á rekstri þeirra eftir
1. jan. 1931, unz tapið er að fullu greitt.
Á sama tíma er ofangreindum fyrirtækj-
um heimilt að draga frá skattskyldum
tekjum sínum 90% af þeirri fjárhæð, sem
þau leggja í varasjóð af árstekjum sín-
um. Bæjar- og sveitarstjórnum er heimilt
að undanþigga sörnu fyrirlæki útsvari á
sama tíma.
Þá voru samþykkt lög um skipun
nefndar ti) að rannsaka hag og rekstur
togaraútgerðarinnar og gera tillögúr um
það mál.
Samþykkkt voru lög um hafnargerð á
Raufarhöfn.
Breytingar voru gerðar á lögum um
Fiskueiðasjóð íslands og lögum um at-
vinnu við siglingar á ísl skipum. Sam-
þykkt var að láta fara fram endurskoðun
á hinum síðarnefndu lögum á árinu 1938.
Fjórar þingsályktanir voru samþykkt-
ar, er snerla málefni sjómanna og út-
gerðarmanna. Er ein um rannsókn vita-
stæðis á Þridröngum, önnur um rann-
sókn á atvinnuskilyrðum aldraðra sjó-
manna, sú þriðja um undirbúning að
endurbyggingu Stýrimannaskólans og sú
fjórða um lækkun leigu talstöðva i skip-
um o. fl.
Skipastóllinn.
Gufuskipum hefir fækkað um tvö á
árinu; eru það slrandferðaskipið „Esjan“,
er seld var til Chile og togarinn „Ólafur“,
er fórst á Halamiðum 2. nóvember.
Fimm mótorbátar voru keyjúir frá út-
löndum á árinu og voru þrír af þeim ný-
byggðir. Auk þess var keypt 1 mótorskip
frá útlöndum, sem er björgunarskútan
„Sæbjörg“.
Sex nýir mótorbátar, er smíðaðir voru
innanlands, bættust við flotann. Yoru 4
af þeim smiðaðir á ísafirði, 1 á Akureyri
og 1 í Reykjavík. Allir þessir bátar eru
nolaðir til fiskveiða, nema einn, sem er
varðbáturinn „Óðinn“.
Síldveiðar Svía við ísland.
Nýlega hefir sænska stjórnin lagt til að árlega
verði varið 50 þús. kr. af opinberu fé, til þess
að styrkja þátttöku Svia i sildveiðunum á ís-
landsmiðum,.