Ægir - 01.02.1945, Síða 36
58
Æ G I R
10. Hafnargerðir og
lendingabætur.
1 Hafnorfirði var unnið að framleng-
ingu á hafnargarðinum. Sá hluti garðsins,
sem byggður var í sumar, stendur á 8 m
dýpi um stórstraumsfjöru. Grafvél
Reykjavíkurhafnar mokaði upp 39000
m3 af möl hinum megin fjarðarins og flutti
hana í garðstæðið. Var mölin borin á
svæði, sem er 60 m breitt og 90 m langt í
framlengingu garðsins. Ofan á malar-
undirstöðuna var svo garðurinn byggður
úr grjóti með steyptri þekju. Fullgerður
var í sumar 55 m. kafli.
Á Akranesi var gerð skipabryggja um
110 m á lengd við Teigavör innan hafnar-
garðsins. Er aðalbryggja'n um 60 m á
lengd, 8 m á breidd lárétt að ofan og nær
út á ca 3,0—3,5 m dýpi miðað við stór-
straumsfjöruborð. Öll er bryggjan steypt
og grjótfyllt með steyptri þekju. Auk
bryggj ugerðarinnar var mjög mikið af
grjóti sprengt og losað úr fjörunni norðan
bryggjunnar í dýpkunarskyni og notað
sem fylbng í bryggjuna. Verkið hófst seint
í maí og var lokið í nóv. s. 1. og mun liafa
kostað nálægt lcr. 750 þús.
í nóvember síðaslliðnum var lokið við
stækkun hafnarbryggjunnar í Borgarnesi,
þannig að hafnarbakkinn var lengdur úr
tæpum 29 m i 80 m, og gengur lengingin
inn með Brákarey. Auk þess var gerð um
40 m breið fylbng uppaf bakkanum og
bætast þá allt að 1400 m2 við það bryggju-
pláss, sem áður var. Dýpi við bakkann er
allt að 2 m um lægstu fjöru. Enn er kostn-
aður ekki uppgerður.
í Hnífsdal var lokið framlengingu báta-
bryggju i Skeljavík, sem unnið var að sum-
arið áður. Er framlengingin 23 m á lengd
og 7 m. á breidd og nær út á ca 3,5 m dýpi
miðað við stórstraumsfjöruborð.
Kostnaður bæði sumrin varð um 267
þús. kr. og' mun hafa farið nokkuð fram úr
áætlun. Olli því sérstaklega óhagstæð veðr-
átta sumarið 1943 og auk þess sem tals-
verðar skemmdir urðu á bryggjunni ófull-
gerðri i stórbrimi og illsku veðri þá um
haustið.
Á ísafirði var hausinn á bæjarbryggj-
unni stækkaður og endurbyggður að
nokkru leyti. Varð kostnaður um kr. 300
þús.
Á Sauðárkróki var sjóvarnargarður fyrir
frarnan kauptúnið lengdur um 25 m. Er
hann þó ekki steyptur í fulla hæð enn þá.
Enn fremur var gert við skemmdir, sem
orðið höfðu á gamla sjóvarnargarðinum-
Kostnaður er enn ekki endanlega upp
gerður.
Haustið 1943 var byrjað á byggingu
garðs á svo kallaðri „Leiru" innan við
innri höfnina á Siglufirði. Er garði þess-
um ætlað að hefta framburðinn úr ánni i
höfnina, en svo sem kunnugt er, er innri
böfnin alltaf að grynnnka, svo að til vand-
ræða horfir. Hér er um bráðabirgðaverk að
ræða, og er garðurinn byggður úr grjóti,
með timburþil, sem þéttikjarna.
Garður þessi er nú fullbyggður í 210 m.
lengd, en kominn í hálfa hæð á 80 m. lengd
að auki. Ráðgert er að garðurinn verði um
400 metra langur samtals.
Kostnaður við þetta verk mun nema um
kr. 117 000.00.
Á síðastliðnu sumri var hafizt handa um
bafnargerð í Ólafsfirði, en sökum örðug-
leika á að útvega efni og tæki var allveru-
lega vikið frá fyrirhugaðri gerð mannvirkj-
anna. Var unnið að báðum görðunum, og
er ytri garðurinn kominn ca. 50 m fram, en
sá innri tæplega 150 metra. Kostnaður við
þessar framkvæmdir munu hafa nuinið
um kr. 550 000.00.
Á Hauganesi við Eyjafjörð var byggð
bátabryggja 30 m löng', 5 m breið og nær
hún á venjulegt bátadýpi. Bryggj uveggú'
eru steyptir, með grjótfyllingu á milli, en
þekjan úr járnbentri steinsteypu. Kostn-
aður nam um kr. 90 000.00.
Á Húsavik var hafinn undirbúningur að
byggingu fyrirhugaðs hafnargarðs fram af
Húsavíkurhöfða. Verður það mikið mann-
virki. Var vinna sú, sem framkvæmd var
á árinu, að mestu undirbúningsvinna.