Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1933, Side 99
IÐUNN’
Orðið er laust.
369
getur rólegur lagst í gröf sína — hvenær sem að þvi
kemur — glaður við pá tilfinningu að hafa gert sitt tll
þess að vekja þjóð sína til meðvitundar um pá hættu, sem
pjóðinni stafar af óráðvandri og óheiðarlegri blaðamensku.
— — Þá finst mér að ég verði að minnast með fáum
orðum á séra Sigurð Einarsson og hinar snjöllu og upp-
byggilegu ritgerðir hans, sem birzt hafa i Iðunni og
öðrum íslenzkum ritum á siðustu árum. Þar sannarlega
eiga Islendingar mann, sem líklegur er til að verða pjóð
sinni til stórmikils gagns og sóma. Mig minnir, að ég hafi
heyrt, að hann sé skólastjóri við Kennaraskólann i Reykja-
vík.*) Það er vel farið, að svo er, og tel ég lán fyrir
pjóðina að eiga slíkan leiðtoga og fræðara fyrir pá, er
ætla að takast á hendur pað vandasama starf að gerast
kennarar æskulýðsins. Það mun einhvern tíma hafa verið
vakið máls á pvi í Sambandssöfnuði íslendinga í Winni-
peg (unítarasöfnuðinum) að fá hann hingað fyrir prest,
en líklega aldrei komist svo langt, að pað mál væri flutt
fyrir honum. Eg er glaður yfir pví, að pað var ekki gert,
— — Ég álít, að Island megi ekki missa séra Sigurð Ein-
arsson, enda hygg ég, að störf hans geti hvergi orðið til
meiri blessunar en á Islandi. Ég óska pess, að hin íslenzka
pjóð megi bera gæfu til að notfæra sér hans rniklu og
góðu hæfileika og æskulýður Islands megi njóta leiðsögu
hans um mörg ókomin ár. — —
*) S. E. er kennari viö Kennaraskólann, en ekki skólastjóri. Aths. ritstj.
ATHS. Höfundur greinarinnar „Uppeldismál og sparnao-
ur“ óskar pess getifi, «3 grein hans sé skrifuð um síðustu
úmniót.
Iðunn XVIt
24