Ægir - 01.03.1980, Síða 51
Fiskbein, fískslóg og heill fískur
Tilkynning nr. 5/1980.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur
ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á fiskbeinum,
■fiskslógi og heilum fiski til mjölvinnslu frá 1. janúar
til 31. maí 1980:
a) Þegar selt er frá fiskvinnslustöðvum
til fiskimjölsverksmiðja:
Fiskbein og heill fiskur, sem ekki er
sérstaklega verðlagður, hvert kg . kr. 10.40
Karfabein og heill karfi, hvert kg kr. 14.70
Steinbítsbein og heill steinbítur,
hvert kg ........................... kr. 6.75
Fiskslóg, hvert kg.................. kr. 4.70
b) Þegar heill fiskur er seldur beint frá
fiskiskipum til fiskimjölsverksmiðja:
Fiskur, sem ekki er sérstaklega verð-
lagður, hvert kg ...................... kr. 9.05
Karfi, hvert kg ....................... kr. 12.80
Steinbítur, hvert kg .................. kr. 5.90
Verðið er miðað við, að seljendur skili framan-
greindu hráefni í verksmiðjuþró. Karfabeinum skal
haldið aðskildum.
Lifur
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur
ennfremur ákveðið eftirfarandilágmarksverð álifur
frá 1. janúar til 31. maí 1980:
1 Lifur (bræðsluhæf, seld frá veiði-
(’r skipi til lifrarbræðslu):
1) Lifur, sem landað er á höfnum frá
Akranesi austur um til Hornafjarð-
ar, hvert kg ................... kr. 70.00
2) Lifur, sem landað er á öðrum höfn-
um, hvert kg ...................... kr. 55.00
Verðið er miðað við lifrina komna á flutningstæki
við hlið fiskiskips.
Verðið er uppsegjanlegt með viku fyrirvara frá og
með 1. mars.
Reykjavík, 14. febrúar 1980.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Sjávarútvegsráðherra boðinn
velkominn til starfa
Hinn 8. febrúar s.l. tók
ríkisstjórn GunnarsThor-
oddsen við völdum. Sjáv-
arútvegs- og samgöngu-
málaráðherra í hinni nýju
stjórn er Steingrímur
Hermannsson.
Steingrímur er fæddur
1928, sonur hjónanna
Vigdísar Steingrímsdótt-
ur og Hermanns Jónas-
sonar fyrrverandi forsæt-
lsráðherra.
Steingrímur tók B.Sc. gráðu í rafmagnsverkfræði
v'ð lllinois Institute of Technology í Chicago 1951
lauk M.Sc. prófi við California Institute of
‘echnology í Pasadena 1952. Að námi loknu tók
Steingrímur fyrst við stöðu verkfræðings hjá Raf-
JJ'agnsveitu Reykjavíkur og á næstu árum gengdi
aann m.a. stöðum sem verkfræðingur hjá Áburðar-
Verksmiðjunni, Southern California Edison Com-
Pany 0g Verklegum framkvæmdum h/f. Fram-
v®mdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins varð Stein-
grímur 1. desember 1957 og gengdi hann því starfi
allt til ársins 1978. Samhliða störfum sínum valdist
Steingrímur til hinna margvíslegustu trúnaðar- og
ábyrgðarstarfa á hinum ýmsu sviðum, s.s. hjá
varnarmálanefnd, Húsnæðismálastofnun ríkisins,
sem framkvæmdastjóri atvinnumálanefndar, aðalfull-
trúi í vísindanefnd Efnahags- og framfarastofnun-
arinnar, samninganefnd við Swiss Aluminium,
í stjórn Áburðarverksmiðjunnar, tækninefnd Orku-
stofnunar, stjórn Framkvæmdasjóðs og Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins o.fl. Á sviði sjávarútvegs-
mála hefur Steingrímur m.a. unnið í fiskveiðilaga-
nefnd og nefnd sem fjallaði um vandamál niður-
suðuiðnaðarins.
Steingrímur varð fyrst varaþingmaður fyrir
Vestfjarðakjördæmi 1968 og síðan aftur fyrri hluta
árs 1971, en var kjörinn þingmaður þess kjördæmis
á því ári. Ritari Framsóknarflokksins var Stein-
grímurfrá 1972-1979, er hann var kjörinn formaður
þess flokks. Frá 1. sept. 1978 til 15. okt. 1979 var
Steingrímur landbúnaðar-, dóms- og kirkjumála-
ráðherra.
Eiginkona Steingríms er Guðlaug Edda Guð-
mundsdóttir.
Ægir óskar Steingrími Hermannssyni farsældar í
hinu nýja og þýðingarmikla starfi hans.
ÆGIR — 171