Ægir - 01.03.1980, Page 53
er til starfandi vélsmiðja á við-
komandi stöðum í sambandi við
bilanir og viðhald.
Ekki liggja fyrir tölur um hve
margar dieselvélar, framleiddar
af Alpha Diesel A/S, hafa verið
Euttar hingað til lands í gegnum
árin.
I bók þar sem Alpha vélaverk-
smiðjan hefir skráð vélapantanir
kemur fram að fyrsta vélin er
pöntuð hingað til lands 8. sept-
ember 1902 af Eyjólfi Þorkelssyni
úrsmið en hann mun hafa verið
umboðsaðili fyrir Alpha hér á
landi á þessum tíma. Vélin varaf
gerðinni 2A 1,5 hö við 450
sn/mín. Ekki hefir tekist að afla
upplýsinga um í hvaða skip vélin
fór. Næst var pöntuð vél frá
Alpha 5. febrúar 1904 og á miðju
ári 1905 var búið að panta níu
vélar hingað til lands, sú afla-
minnsta var 1,5 hö við 450
sn/mín en sú aflamesta var 8 hö
við 440 sn/mín.
í dag er í flota landsmanna 47
dieselvélar frá áðurnefndum
framleiðanda. Samanlögð hest*
aflatala þessara véla er 47.080 hö
og meðalaldur 9,6 ár. Elsta vélin
er frá árinu 1954 og er í Sand-
gerðingi KE-517.
A,pha dieselvél gerð I2V23L-V<>.
ÆGIR — 173