Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1980, Page 17

Ægir - 01.10.1980, Page 17
Verði nokkuð dreifðar, þar sem útgerðarhættir eru talsvert breytilegir eftir landshlutum. Það verður t*ví ekki vandalaust að vinna úr þessum gögnum, bannig að allir verði ánægðir. Þar verður þó reynt að taka tillit til sem flestra sjónarmiða, þannig út komi fiskiskip er sem flestir útgerðar- og skipstjórnarmenn geti fellt sig við. Einnig munu allir Þ®ttir sem stuðlað gætu að sparnaði og hagræð- 'ngu í rekstri skipanna hafa veruleg áhrif á endan- *ega hönnun þeirra. ^fleð þetta í huga og góð ráð útgerðar- og skipsstjórnarmanna verða gerðar línu- og fyrir- •tornulagsteikningar fyrir þær skipsstærðir sem ^testa athygli vekja. Pyrirhugað er að gera ítarlegar tilraunir með skipslíkön af viðkomandi skipum hjá viðurkenndri stpfnun á því sviði. Þessar tilraunir leiða í ljós hámarks vélaraflsþörf skipanna til þess að þau upp- yili tilskilin skilyrði um ganghraða og togafl. h*ér verður lögð sérstök áhersla á það að ná fram rn°tstöðulitlu skrokkformi, góðu skrúfustæði, hag- stæðri skrúfu ásamt sjóhæfni. Þessi atriði verða vandlega könnuð við hönnun skipanna og athuguð meðan á tilraunum stendur °g endurbætur gerðar ef þurfa þykir. Að þessu loknu verður lokið fyrsta áfanga þessa verkefnis sem starfsmenn verkefnisins hafa nefnt frum- hönnun. Þegar hér verður komið má segja að vanda- samasta hluta verkefnisins sé lokið. - Þó er enn mikil vinna óunnin áður en smíði getur hafist. N æsti áfangi verður gerð smíðalýsinga fyrir skipin ásamt leitun tilboða í hin ýmsu tæki og efni sem þarf til smíðinnar. Það er álit margra að vegna smæðar okkar og legu landsins hafi oft reynst erfitt að ná fram viðunandi kjörum á aðkeyptan búnað. Á það bæði við um verð og afhendingartíma. Þar sem aðkeyptur búnaður er allstór þáttur í verði skips er hér tals- vert í að sækja. Síðasti áfangi þessa verkefnis fyrir utan sjálfa smíðina er teiknivinna, þ.e.a.s. gerð klassateikn- inga og vinnuteikninga fyrir lagnir, skrokk og búnað. Að þeim áfanga loknum getur smíði hafist. Það er von okkar sem að þessu verkefni vinna, að það leiði til raðsmíði á hlutfallslega ódýrum og hagkvæmum fiskiskipum og gæti þannig orðið til að efla íslenskan skipasmíðaiðnað um leið og við endurnýjum okkar mjög svo gamla vertíðar- flota. mesta lengd 33.6 m breidd 8.0 m dýpt að togþ. 6.2 m dýpt að aðalþ. 4.0 m ÆGIR — 521

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.