Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1954, Side 12

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1954, Side 12
greindar heimildir til handa útvarpi eru og bundnar því skilyrði, að stéttarfélag eða stéttarsamband höfunda hafi fengið almenna aðild um flutningsrétt á ritverkum eða tónsmíðum og settum reglum sé fylgt um greiðslu til höf- undar. Þá leiðir það og af hinum persónulega þætti höf- undarréttarins, að ekki mundi heimilt á nokkurn hátt að flytja verk hans á þann hátt eða í því sambandi, að flutn- ingurinn teldist misþyrma verkinu eða vera móðgandi fyr- ir höfund þess. Auk undanþágu þeirrar fyrir útvarp, sem nú hefur verið .rætt um, er heimilt skv. nefndri lagagrein án allra kvaða að flytja á samkomum „sem haldnar eru í góðgerð- arskyni, eða til þess eingöngu að kynna menntir þjóð- arinnar eða til mannfagnaðar" sömu tegundir hug- verka og útvarpinu er heimilt að flytja án leyfis. Þó er þetta þrengra að því er tónverk varðar, þannig, að engum er heimilt að flytja „einstök lög eða kafla úr tónverkum", þar sem útvarpinu er heimilt án leyfis að flytja „einstök lög eða tónverk". Þá er það og veigamikil takmörkun á þessari undanþágu að slíkur kvaðalaus flutn- ingur er bundinn því skilyrði, „að <engin greiðsla komi fyrir flutninginn", þ. e. a. s. að þeir, sem flytja verkin, þ. e. upplesarar, hljóðfæraleikarar og aðrir slíkir, taki ekki greiðslu fyrir sína vinnu. Hugsunin að baki þessu skilyrði er sú, að þótt samkoma sé haldin í ofangreindum tilgangi, þá sé þó rétt, að hinn skapandi listamaður, þ. e. höfundurinn, fái greiðslu fyrir verk sín, ef hinn túlkandi listamaður fái greiðslu fyrir sína vinnu. Auk þess, sem greind undanþága nær til samkoma, sem haldnar eru í góðgerðarskyni eða til mannfagnaðar, er sama heimild með sömu skilyrðum iátin ná til samkoma „félaga eða skóla“, með því viðbótarskilyrði, að aðgöngu- eyrir sé ekki hærri en svarar beinum tilkostnaði. Að því er danslög varðar er undanþágan nokkuð rýmri en um önnur verk, þannig að danslög má leika kvaðalaust á samkomum, þótt hljóðfæraleikari taki venjulega þókn- un „nema félagsbundin eða föst hljómsveit leiki“. 138

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.