Tímarit lögfræðinga - 01.10.1954, Blaðsíða 29
tillögur, sem norska nefndin studdi, um það, að samvinna
embættismannanna takmarkaðist ekki við fundahöld, held-
ur yrði stofnað samband norrænna embættismanna fram-
kvæmdarvaldsins. Var einróma samþykkt á fundi þessum,
sem haldinn var dagana 20. og 21. september 1918, að
stofna „Nordisk Administrativt Forbund".
Þegar þetta gerðist kom að sjálfsögðu ekki til greina
þátttaka Finnlands, sem þá átti í borgarastyrjöld, og Is-
land hafði ekki hlotið fullt sjálfstæði. Islenzkir embættis-
menn áttu jafnan rétt sem danskir til þátttöku í félags-
skapnum, en þá var á þá litið sem danska embættismenn.
Á fyrsta fundinum bauð formaður sænsku nefndarinn-
ar, E. Trolle, landshöfðíngi, fundarmenn velkomna,
frumvörp voru samin til félagslaga fyrir sambandið
og þrír fyrirlestrar voru haldnir. Hinn fyrsta hélt
regeringsrádet Gabriel Thulin, um „Sveriges högsta ad-
ministrativa domstol, Regeringsrátten", annan hélt Ek-
spedisjonssjefen Henry Larsen um „Organisationer av
den almindelige elektrisitetsforsyning í Norge“ og hinn
þriðja hélt Departementschef Frantz Dahl um „Den danske
Central-administrations Organisation“. Efnisvalið er ein-
kennandi fyrir efnisval í fyrirlestra þá, sem haldnir hafa
verið síðan á vegum sambandsins og ritgerðir þær, sem
birzt hafa í tímariti þess.
Þegar á sama fundi kom Aage Sachs, danskur embættis-
maður, sem var einn af áhugasömustu starfsmönnunum í
sambandinu, fram með þá hugmynd að gefa út tímarit,
sem svipaði að formi til „Nordisk Tidsskrift for Retsviden-
skab“. Þessu var komið í framkvæmd og fyrsta heftið
kom út 1920. Hefur ritinu verið haldið áfram óslitið síðan,
og ætíð hefur það verið í miklu áliti meðal fræðimanna,
enda er þar margt lærdómsríkra ritgerða um ýmisleg
administrativ efni. Að nafninu til er ritstjórnin í hönd-
um nefndar, sem í eru einn maður úr hverju norrænu
ríkjanna, en aðalritstjórnina annast danskur embættis-
maður og stjórn dönsku deildar sambandsins hefur mestan
veg og vanda af útgáfu tímaritsins.
155